Orku- og umhverfistæknifræði og mekatróník tæknifræði í Orku- og tækniskóla Keilis

Heiti námskeiðs: Eðlisfræði I Námskeiðslýsing: Í námskeiðinu er farið yfir grundvallarlögmál hreyfifræði,  orkuvarðveislu og aflfræði. Markmiðið er

EÐL01 - Eðlisfræði I

Heiti námskeiðs: Eðlisfræði I
Námskeiðslýsing: Í námskeiðinu er farið yfir grundvallarlögmál hreyfifræði,  orkuvarðveislu og aflfræði. Markmiðið er að nemendur öðlist fræðilega þekkingu á eðlifræðilegum hugtökum og geti tamið sér öguð vinnubrögð og færni við úrlausn á eðlisfræðilegum úrlausnum.  Áhersla er lögð á að nemendur geti tengt eðlisfræðileg úrlausnarefni við raunveruleikann og séu fær um að skilja hugtök eins og hreyfingu í tví- og þrívídd, hreyfilögmál Newtons, hreyfi- og stöðuorku, árekstra og skriðþunga og alfræði snúningshreyfinga. Ennfremur er lögð áhersla á að nemendur temji sér öguð vinnubrögð við skil á dæmaúrlausnum. Einnig verður farið í eina eðlisfræðitilraun sem nemendur skila dagbók og skýrslu úr, til að nemendur öðlist kunnáttu á gagnaúrvinnslu með gröfum og óvissuútreikningum. Við lausn verkefna verður stuðst við Mastering Physics viðmót á vefnum. 
Hæfnisviðmið: Nemendur sem ljúka námskeiðinu eiga að vera færir um að:
  • Nota aðferðir eðlisfræðinnar við lausn raunverulegra viðfangsefna
  • Geta unnið úr tilraunagögnum og geta skilað niðurstöðum á skýrsluformi
  • Skilja grundvallarhugtök í eðlisfræði eins og hreyfifræði, orkuvarðveislu og aflfræði
Nemendur eiga að kunna skil á og geta notað:
  • Einingar eðlisfræðilegra stærða og vektora
  • Hreyfingar í tví og trívídd
  • Lögmál Newtons
  • Vélræn orku, stöðuorku og hreyfiorku
  • Skriðþunga breytingar
  • Snúning fastra hluta
  • Aflfræði snúningshreyfinga 
Grunnupplýsingar

          
Námskeiðsnúmer: EÐL01
Enskt heiti: Physics I
Deild | Eining: Orku- og tækniskóli Keilis
Einingafjöldi: 4 einingar (ECTS)
Lágmarkseinkunn: 5,0
Námskeiðstegund: Verkefni
Námsstig: Grunnnám
Kennslumisseri: 1
Kennslufyrirkomulag: Fyrirlestrar og æfingar
Heildarfjöldi kennslustunda: 50
Heildarfjöldi fyrirlestra: 35
Heildarfjöldi umræðutíma: 0
Heildarfjöldi verklegra tíma: 15
Hámarksfjöldi nemenda: 40
Umsjón

Kennsla: Páll Jens Reynisson
Umsjón:
Undanfarar | Forkröfur:
Námsmat: Lokapróf verður haldið í lok námskeiðsins. Lokaprófið verður 3 klukkustunda langt þar sem prófað er úr öllu efni námsefnisins. Einkunnagjöf:
  • Lokapróf gildir 70% af lokaeinkunn námskeiðs – ná þarf prófhluta til að standast námskeiðið
  • Nemendur verða að skila 10 heimadæmum. Heimadæmi gilda 10% af lokaeinkunn námskeiðs, öll heimadæmi gilda jafnt það er 1% hver heimadæmi
  • Dagbókarskil fyrir tilraun gilda 10% og skýrsluskil fyrir tilraun gilda 10%
Bækur:
  • University Physics with Modern Physics, Mastering Physics (12th Edition)
    Hugh Young, Roger Freedman, Lewis Ford
    ISBN13: 9780321501318
    ISBN10: 0321501314
  • Annað námsefni: Vinnuseðill fyrir tilraun og hefti fyrir óvissuútreikninga.
Athugasemdir:

Framsetning efnis

Póstlisti


moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf