Flýtilyklar
Námsgjöld
Reglur um námsgjöld 2011 - 2012
- Staðfestingargjald er innheimt strax að lokinni samþykkt í nám.
- Staðfestingargjald er óafturkræft, hætti nemandi við að hefja nám hjá Keili. Annars dregst það frá skólagjöldum fyrstu annar.
- Skráningargjald í Orku- og tækniskólann skal greitt fyrir upphaf haustannar.
- Skóla- og efnisgjöld eru innheimt fyrir hverja önn sérstaklega eða heila námsleið, allt eftir eðli námsskipulags. Gjöldin skulu vera að fullu greidd áður en nám hefst á viðkomandi önn eða námsleið.
- Nemandi sem ekki hefur greitt gjöld sín þegar önn hefst fær ekki að hefja nám á viðkomandi önn eða námsleið og aðgangi hans að net- og kennslukerfum Keilis er lokað.
- Skóla- og efnisgjöld eru óendurkræf, hafi nemandi hafið námið. Vegna sérstakra persónulegra aðstæðna getur nemandi óskað eftir að taka hlé á námi þar til viðkomandi námslína hefst aftur og getur þá átt skóla- og efnisgjöld inni í allt að eitt og hálft ár.
- Gjöld skulu greidd með útsendum greiðsluseðli.






