Orku- og umhverfistæknifræði, mekatróník tæknifræði og frumkvöðlafræði - Orku- og tækniskóli Keilis

Orku- og umhverfistæknifræði (224 ECTS einingar) Heiti lokaprófs og (ef við á) titils (á móðurmáli)   Aðalnámsgrein til lokaprófs     Orku- og

Skipulag náms

Orku- og umhverfistæknifræði (224 ECTS einingar)

Heiti lokaprófs og (ef við á) titils (á móðurmáli)  
Aðalnámsgrein til lokaprófs     Orku- og umhverfistæknifræði
Tungumál sem kennsla/próf fara fram á   Íslenska/enska - háð kennurum og nemendum. Flest allar kennslubækur eru á ensku.
Námsstig   Þrjú ár í grunnnámi á háskólastigi.
Skilgreind lengd námsleiðarinnar   Fullt nám í tæp þrjú námsár.
Aðgangskröfur   Íslenskt stúdentspróf (eftir 4 ár í framhaldsskóla) eða sambærilegt próf. Deildin mælir eindregið með að stúdent hafi lokið a.m.k. 24 einingum í stærðfræði og 30 í raungreinum, þar af a.m.k. 6 í eðlisfræði.
Tilhögun náms   Fullt nám.
Námskröfur   Ljúka þarf 224 ECTS einingum fyrir lokapróf - 80 ECTS einingar á ári.
Hæfniviðmið   Skoða
Kennarar   Skoða
Aðgangur að frekara námi  
Starfsréttindi (ef við á)   Veitir nægan undirbúning til að sækja um lögverndaða starfsheitið tæknifræðingur til iðnaðarráðuneytisins.
Frekari upplýsingar um námsleiðina  

 

Uppsetning námsins hjá Orku- og tækniskóla Keilis er frábrugðin hefðbundnu fyrirkomulagi hér á landi af því leyti að námsárinu er skipt upp í tvær annir, 20 vikur hvor önn. Á miðri önn er einnar viku frí að auk sex vikna í sumarfrí. Námskeiðin eru fleiri á hverri önn en í hefðbundnu háskólanámi, en að sama skapi verður námsefnið í hverju þeirra afmarkaðra og hnitmiðaðra. 

Námið dreifist því á fleiri vikur á árinu og þannig næst að halda námsálaginu óbreyttu. Með þessu móti ná nemendur að nemendur ljúka 80 ECTS einingum á ári í stað 60 ECTS eininga eins og almennt tíðkast. Þar með gefst nemendum kostur á að vera á námslánum allt árið. Af þessu leiðir að náminu lýkur fyrr og skemmri námstími þýðir fyrst og fremst að nemendur komast fyrr út í atvinnulífið.

Framsetning efnis

Póstlisti


moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf