Flýtilyklar
Inntökuskilyrði
Sömu kröfur eru gerðar til umsækjenda í tæknifræðinám og í verkfræði hjá HÍ. Til að hefja tæknifræðinám skal umsækjandi hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu námi. Sambærilegt stúdentsprófi teljast:
-
4. stigs próf frá vélstjórnarbraut Tækniskólans (áður Vélskóli Íslands);
-
Próf frá frumgreinasviði Háskólans í Reykjavík (áður Tækniháskóli Íslands/Tækniskóli Íslands); eða
-
Lokapróf frá Verk-og raunvísindadeild Háskólabrúar Keilis.
Kennslan í tæknifræði miðast við að nemendur hafi tekið að minnsta kosti 24 einingar í stærðfræði og 30 einingar í náttúrufræðigreinum (þar af a.m.k 6 einingar í eðlisfræði) í framhaldsskóla.
Umsækjendur sem ekki fullnægja þessum viðmiðunum verður boðið upp á meðal annars stærðfræðikennslu áður en kennsla hefst í ágúst.






