Orku- og umhverfistæknifræði og mekatróník tæknifræði í Orku- og tækniskóla Keilis

Háskólanám í orku- og umhverfistæknifræði í Orku- og tækniskóla Keilis

Orku- um umhverfistæknifræði

Orku- og umhverfistæknifræðin, eins og nafnið gefur til kynna, snýst um orku og umhverfisþætti. Aðaláhersla námsins er jarðvarmaorka og, í tengslum við hana, að nemendur öðlist skilning á þeim tæknilegum atriðum sem tengjast því sem gerist bæði neðan sem og ofan yfirborðs jarðar. Beislun annarrar grænnar og endurnýjanlegrar orku eins og sólar-, vind-, sjávar- og efnaorku verður einnig viðfangsefni námsins.


Afhverju að læra orku- og umhverfistæknifræði?

Orkugeirinn hefur verið í miklum vexti undanfarin ár, og gera má ráð fyrir að mikil tækifæri verði í þeim geira á næstu árum. Vaxandi þörf hefur verið fyrir tæknimenntað starfsfólk til starfa við undirbúning og mat verkefna, hönnun, framkvæmdir, eftirlit, rekstur og viðhald. Í þessi störf hentar starfsfólk með þverfaglegan bakgrunn í orkufræðum, jarðvísindum ásamt vél-, rafeinda- og hugbúnaði. 


Boðið upp á námið í samstarfi við Háskóla Íslands

Orku- og umhverfistæknifræði er háskólanám og er boðið er upp á námið í samstarfi við Háskóla Íslands, sem útskrifar nemendur. Nám til orku- og umhverfistæknifræðings hjá Keili tekur tæp þrjú ár.  Námið er lánshæft hjá LÍN samkvæmt reglum sjóðsins.    


Um nám í orku- og umhverfistæknifræði?

Námið í orku- og umhverfistæknifræði hjá Orku- og tækniskóla Keilis er þverfaglegt nám þar sem veittur er sterkur grunnur í jarðvísindum og undirstöðu orkugreinum, auk sterks hagnýts grunns í því að nýta bæði rafeinda- og hugbúnað til að stjórna vélbúnaði, og notkun mælitækja. Meðal þess sem kennt verður má nefna: mælitækni til þess að ná upplýsingum úr umhverfinu, merkjavinnsla til að vinna úr upplýsingunum og stýritækni til að bregðast við upplýsingunum.

Breið undirstaða verður veitt í borholutækni, nýtingu jarðvarma, orkuvinnslu, orkuumbreytingu og dreifingu. Einnig verður kennt hvernig á að hanna vélhluti, velja efni m.t.t. tæringar, slits og þreytu. Auk þess verður nemendum kennd rafmagnsfræði, viðhaldstjórnun, rekstrarfræði, áhrif umhverfisþátta ásamt fleiri fögum sem eru mikilvæg í starfi orkutæknifræðinga.


Aðstaða og umgjörð

Kennsla og verklegar æfingar nemenda fara fram í fyrsta flokks aðstöðu í nýuppgerðum kennslustofum Orku- og tækniskóla Keilis á Ásbrú. Aðstaða til náms og rannsókna er með því sem best gerist hér á landi, og er stefnt að því að bæta enn frekar við aðstöðu skólans í framtíðinni. Í húsnæði skólans er fullkomin efnafræðistofa og í undirbúningi er uppsetning á metan áfyllingarstöð við byggingu skólans sem mun nýtast nemendum við rannsóknir á vistvænu eldsneyti. Gott samstarf er við fyrirtæki í greininni sem stuðlar að gagnvirkum samskiptum við atvinnulífið og raunverulegum nemendaverkefnum, til að mynda Hitaveitu Suðurnesja og Vélamiðstöðinni, sem eru leiðandi fyrirtæki á Íslandi þegar kemur að þróun og nýtingu á endurnýjanlegum orkugjöfum.


Stundaskrár vorið 2012 (janúar - mars)

Framsetning efnis

Póstlisti


moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf