Flýtilyklar
Skipulag náms
Mekatróník tæknifræði (224 ECTS einingar)
| Heiti lokaprófs og (ef við á) titils (á móðurmáli) | ||
| Aðalnámsgrein til lokaprófs | Mekatróník tæknifræði | |
| Tungumál sem kennsla/próf fara fram á | Íslenska/enska - háð kennurum og nemendum. Flest allar kennslubækur eru á ensku. | |
| Námsstig | Þrjú ár í grunnnámi á háskólastigi. | |
| Skilgreind lengd námsleiðarinnar | Fullt nám í tæp þrjú námsár. | |
| Aðgangskröfur | Íslenskt stúdentspróf (eftir 4 ár í framhaldsskóla) eða sambærilegt próf. Mælt er með að stúdent hafi lokið a.m.k. 24 einingum í stærðfræði og 30 í raungreinum, þar af a.m.k. 6 í eðlis-fræði. | |
| Tilhögun náms | Fullt nám. | |
| Námskröfur | Ljúka þarf 224 ECTS einingum fyrir lokapróf - 80 ECTS einingar á ári. | |
| Hæfniviðmið | Skoða [PDF] | |
| Kennarar | Skoða | |
| Aðgangur að frekara námi | ||
| Starfsréttindi (ef við á) | Veitir nægan undirbúning til að sækja um lögverndaða starfsheitið tæknifræðingur til iðnaðarráðuneytisins. | |
| Frekari upplýsingar um námsleiðina | Heimasíða mekatróník tæknifræði |
Uppsetning námsins hjá Orku- og tækniskóla Keilis er frábrugðin hefðbundnu fyrirkomulagi hér á landi af því leyti að námsárinu er skipt upp í tvær annir, 20 vikur hvor önn. Á miðri önn er einnar viku frí að auk sex vikna í sumarfrí. Námskeiðin eru fleiri á hverri önn en í hefðbundnu háskólanámi, en að sama skapi verður námsefnið í hverju þeirra afmarkaðra og hnitmiðaðra.
Námið dreifist því á fleiri vikur á árinu og þannig næst að halda námsálaginu óbreyttu. Með þessu móti ná nemendur að nemendur ljúka 80 ECTS einingum á ári í stað 60 ECTS eininga eins og almennt tíðkast. Þar með gefst nemendum kostur á að vera á námslánum allt árið. Af þessu leiðir að náminu lýkur fyrr og skemmri námstími þýðir fyrst og fremst að nemendur komast fyrr út í atvinnulífið.






