Orku- og umhverfistæknifræði, mekatróník tæknifræði og frumkvöðlafræði - Orku- og tækniskóli Keilis

Útskrift úr frumkvöðlanámi verður 14. ágúst næstkomandi Keilir býður upp á eins árs frumkvöðlanám sem er öflug blanda hagnýtra námsgreina og vinnu

Frumkvöðlanám

Útskrift úr frumkvöðlanámi verður 14. ágúst næstkomandi

Keilir býður upp á eins árs frumkvöðlanám sem er öflug blanda hagnýtra námsgreina og vinnu við þróun viðskiptahugmyndar undir handleiðslu færustu sérfræðinga á vegum aðstandenda námsins, Keilis, Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands (NMÍ) og verkfræðideildar Háskóla Íslands. Það fer að miklu leiti fram í Eldey, frumkvöðlasetri Keilis, NMÍ og HÍ, þar sem nemendur verða með aðstöðu sína innan um frumkvöðla og sprotafyrirtæki á vegum NMÍ og hafa aðgang að ráðgjöf sérfræðingateymis Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, fyrsta flokks aðstöðu til tölvuvinnslu, með fundarherbergjum og almennri skrifstofuþjónustu.

Námið gefur nemendum tækifæri til að þróa hugmynd sína til fullbúinnar viðskiptaáætlunar undir handleiðslu helstu sérfræðinga landsins í þessum efnum.  Sérfræðingarnir hafa mikla reynslu af því að vinna með frumkvöðlum og að nýsköpun

Námið er 60 ECTS diplomanám á háskólastigi og er skipulagt í samstarfi Keilis, verkfræðideildar Háskóla Íslands og Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands (NMÍ) . Áhersla er lögð á hagnýtt nám með skýru markmiði, sem er að í lok þess standa nemendur uppi með fullþróaða viðskiptahugmynd og viðskiptaáætlun sem tilbúin er til fjármögnunar.

Nemendur útskrifast með gráðuna PDE (Professional Diploma in Entrepreneurship). Námskeiðin í náminu eru kennd í lotum sem eru að jafnaði á tveggja vikna fresti og standa í tvo og hálfan dag í senn (yfirleitt frá fimmtudagshádegi til laugardags) og getur það því hentað þeim sem eru í vinnu, sem og þeim sem vilja helga sig þróun viðskiptahugmyndar sinnar þess á milli.

Inntökuskilyrði eru stúdentspróf eða sambærilegt nám (Háskólabrú Keilis og frumgreinanám hjá HR eða Bifröst).  Nemendur sem ekki hafa lokið stúdentsprófi, eða sambærilegu námi, en hafa þó töluvert framhaldsskólanám að baki er mögulega hægt að samþykkja inn í námið með því að meta starfsreynslu þeirra - tengdri viðskiptahugmyndinni þeirra. Lánasjóður íslenskra námsmanna (LÍN) veitir lán fyrir námsgjöldum og framfærslu eftir reglum sjóðsins og framvindu nemenda.

Fagráð frumkvöðlanámsins skipa:
Jóhann Pétur Malmquist, prófessor við verkfræðideild Háskóla Íslands
Rúnar Unnþórsson, forstöðumaður Orku- og tækniseturs Keilis
Sigríður Ingvarsdóttir, framkvæmdastjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands

Framsetning efnis

Póstlisti


moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf