Flýtilyklar
Námsframboð
Háskóli Íslands og Orku- og tækniskóli Keilis bjóða upp á tvær þverfaglegar línur í
tæknifræði. Eina í orku- og umhverfistæknifræði (e. green sustainable energy) og aðra í mekatróník
tæknifræði (e. mechatronics).
Orku- og umhverfistæknifræðin, eins og nafnið gefur til kynna, snýst um orku og umhverfisþætti. Aðaláhersla námsins er jarðvarmaorka
og, í tengslum við hana, að nemendur öðlist skilning á þeim tæknilegum atriðum sem tengjast því sem gerist bæði neðan sem og
ofan yfirborðs jarðar. Beislun annarrar grænnar og endurnýjanlegrar orku eins og sólar-, vind-, sjávar- og efnaorku verður einnig viðfangsefni
námsins.
Mekatróník er ein af þeim greinum tæknifræðinnar sem hefur verið að eflast mest síðustu áratugi. Orðið mekatrónik,
eða mechatronics á ensku, er samsett orð úr Mechanisms og electronics. Hugtakinu Mechatronics var varpað fram af japanska verkfræðingnum Tetsuro Mori
árið 1969. Í dag nær hugtakið yfir töluvert breiðara svið en því var ætlað upphaflega og má segja að það
sé nú notað til þess að vísa til ákveðinnar tæknilegrar aðferðarfræði frekar en tækninnar sjálfrar. Í
stuttu máli má segja að mekatróník fjalli um það þegar rafeinda- og hugbúnaðarfræði er notuð samhliða hönnun á
vélbúnaði til þess að búa til sjálfvirkan og/eða "vitrænan" vélbúnað. Í mekatróník náminu
hjá Orku- og tækniskóla Keilis læra nemendur að hanna mekatrónísk kerfi, mæla og vinna úr mælingum til þess að stjórna
vélbúnaði auk þess að læra nóga rafeindatækni til að geta búið til búnað til að mæla og vinna úr
mælingum. Þetta nám nýtist öllum sem vilja vinna við raf- og rafeindastýrðan vélbúnað, hvort sem er í orku-,
framleiðslu- eða öðrum iðnaði.







