Flýtilyklar
Stærstu iðnaðarþjarkar á Íslandi við kennslu hjá Keili

Iðnaðarþjarkar Orku- og tækniskóla Keilis
Iðnaðarþjarkar Keilis eru forritanleg, margnota tæki sem geta hreyft sig um sjö hreyfiása og eru meðal annars nýttir við logsuðu, málun,
samsetningu og við eftirliti með framleiðslu. Þeim er ætlað að leysa flókin verkefni á miklum hraða og af mjög mikilli nákvæmni, og
eru iðnaðarþjarkar Keilis því mikilvægt kennslutæki fyrir mekatróník tæknifræðinga.
Orku- og tækniskóli Keilis býður upp á tvær þverfaglegar námsbrautir í tæknifræði á háskólastigi,
orku- og umhverfistæknifræði og mekatróník tæknifræði. Boðið er upp á námið í samstarfi við Háskóla
Íslands sem útskrifar nemendur skólans. Kennsla og verklegar æfingar nemenda fara fram í nýuppgerðum kennslustofum á Ásbrú, og er
fullkomin aðstaða til rannsókna og tilrauna á skólasvæðinu. Orku- og tækniskóli Keilis leggur áherslu á gagnvirk samskipti við
fyrirtæki og raunveruleg nemendaverkefni, sem tryggir tengsl nemenda við framþróun og vinnubrögð í atvinnulífinu.






