Hagnýtt háskólanám í mekatróník hátæknifræði
Flýtilyklar
Fréttir
Umsókn um nám
Umsóknarfrestur um háskólanám í tæknifræði hjá Keili er til 6. júní næstkomandi. Kynntu þér námsframboðið hérna
Fyrir nemendur
Nám á haustönn 2012
Um námið
Keilir býður upp á fjölfaglegt og hagnýtt tæknifræðinám á háskólastigi sem veitir útskrifuðum nemum rétt til að sækja um lögverndaða starfsheitið tæknifræðingur eftir þriggja ára nám. Nemendur geta valið um mekatróník hátæknifræði eða orku- og umhverfistæknifræði. Námið hentar vel þeim sem hafa verkvit og áhuga á tæknilegum lausnum og nýsköpun.
Miklir atvinnumöguleikar eru í tækni- og hugverka- greinum og er tæknifræðinámið hjá Keili bæði stysta og hagkvæmasta verk- og tæknifræðinám sem völ er á. Námið er sveigjanlegt og þannig úr garði gert að nemendur geti unnið með skólanum á seinni stigum námsins. Tæknifræðinám hjá Keili undirbýr nemendur vel fyrir krefjandi og fjölbreyttan vinnumarkað.
