Flýtilyklar
Stjórn Keilis 2011
Stjórn Keilis árið 2011 er skipuð eftirfarandi einstaklingum

Frá stjórnarformanni
Aðeins tveimur árum frá stofnun Keilis, miðstöðvar vísinda, fræða og atvinnulífs, hefur tekist að byggja stoðir sem marka tímamót í menntun og atvinnusköpun þjóðarinnar. Eiginfjárstaða Keilis hefur styrkst vel.
Þegar bandaríski herinn tilkynnti að hann hygðist yfirgefa varnarsvæðið 15. mars 2006, hafði stefna okkar þegar verið sett á að skapa tækifæri úr slíkri stöðu. Gögnum hafði verið safnað um mat á æskilegustu umbreytingarferlum ef slíkar aðstæður kæmu upp. Sýn okkar var til menntunar og atvinnusköpunar.
Árni Sigfússon,
| Stjórnarformaður: | Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar |
| Varaformaður: | Jón Atli Benediktsson, aðstoðarrektor vísinda og kennslu við Háskóla Íslands |
| Meðstjórnendur: | Halldór Jónsson, sviðsstjóri vísindasviðs Háskóla Íslands Kjartan Þór Eiríksson, framkvæmdastjóri Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar Ásgeir Margeirsson, forstjóri Magma Energy Iceland Einar Hannesson, Eiríkur Hjálmarsson, upplýsingafulltrúi Orkuveitu Reykjavíkur |
| Varamenn: | Sæunn Stefánsdóttir, Brynhildur Davíðsdóttir, dósent í Umhverfis- og auðlindafræðum við Háskóla Íslands Ingvi Jónasson, Guðbrandur Einarsson, Grímur Sæmundsson, Ólafur Flóvenz, forstjóri íslenskra orkurannsókna Ragnar Örn Pétursson, |

Frá stjórnarformanni
Aðeins tveimur árum frá stofnun Keilis, miðstöðvar vísinda, fræða og atvinnulífs, hefur tekist að byggja stoðir sem marka tímamót í menntun og atvinnusköpun þjóðarinnar. Eiginfjárstaða Keilis hefur styrkst vel.
Orkuklasi er orðinn að veruleika, heilsuklasi er í uppbyggingu og nýsköpun blómstrar. Tækifæri tengd flugsamgöngum eru að sýna styrk
sinn. Íbúar á Reykjanesi og nánast af landinu öllu hafa nýtt sér aukin tækifæri til að skapa brú á milli fyrri menntunar
sinnar og háskólamenntunar.
Þegar bandaríski herinn tilkynnti að hann hygðist yfirgefa varnarsvæðið 15. mars 2006, hafði stefna okkar þegar verið sett á að skapa tækifæri úr slíkri stöðu. Gögnum hafði verið safnað um mat á æskilegustu umbreytingarferlum ef slíkar aðstæður kæmu upp. Sýn okkar var til menntunar og atvinnusköpunar.
Stuðningur ríkisstjórnarinnar til þessara fyrstu verka var afar mikilvægur. Það var gert með stofnun Þróunarfélags
Keflavíkurflugvallar (Kadeco) og síðan stuðningi fyrirtækja, stéttarfélaga, sveitarfélaga og Háskóla Íslands við
áframhaldandi uppbyggingu. Keilir er mikilvæg afurð þessa samstarfs.
Án hæfra starfsmanna væri okkur ekki að takast þetta merka uppbyggingar- og þróunarstarf. Ég færi Runólfi Ágústssyni,
sem nú lætur af störfum sem framkvæmdastjóri Keilis, innilegar þakkir fyrir frábært starf. Með leiðsögn hans og eldmóði hefur
verkefni Keilis náð dýpt og krafti með undraverðum hraða. Uppbyggingin á þessu fyrrum varnarsvæði þykir hafa tekist svo vel að erlendir
aðilar með sambærilega reynslu af lokun herstöðva telja það vera eitt best unna umbreytingaverkefni í heimi.
Framundan er frekari styrking og þróun klasanna. Það verður gert í samstarfi Kadeco, fyrirtækja, stofnana, samtaka og sveitarfélaga. Sú
þekking, áhugi og stuðningur sem skapast hefur, mun án efa styrkja Keili áfram til frumherjaverkefna í þágu nýrra rannsókna og
atvinnutækifæra.
Árni Sigfússon,
stjórnarformaður Keilis
Á næstunni
18.02.2012





