Flýtilyklar
Starfsfólk
PERSÓNULEGAR UPPLÝSINGAR: Fæddur 29. desember 1971 í Reykjavík.
MENNTUN: Stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1991, öðlaðist Einkaflugmannsskírteini árið 1990 og Atvinnuflugmannsskírteini með blindflugsáritun á fjölhreyfla flugvélar og flugkennararéttindi árið 1994. Sat námskeið í Flugslysarannsóknum við Cranfield háskóla árið 2000. Öðlaðist Tegundarkennaraáritun á Boeing B757/767 árið 2006 og tilnefndur prófdómari Flugmálastjórnar Íslands á Boeing B757/767 síðan 2007.
FÉLAGSSTÖRF: Nefndarmaður í Öryggisnefnd Félags Íslenskra Atvinnuflugmanna (ÖFÍA) frá 2008-2011 og formaður frá 2011.
STARFSREYNSLA: Hóf nám í flugumferðarstjórn hjá Flugmálastjórn Íslands árið 1994, en hvarf til flugstarfa hjá Icelandair (http://www.icelandair.is/) á Fokker 50 árið 1995 sem flugmaður. Hlaut réttindi á Boeing B757 árið 1997 en fór aftur á Fokker 50 sem flugstjóri árið 1999. Frá 2002-2004 Flugrekstrarstjóri Flugfélagsins Air Atlanta Icelandic (http://www.airatlanta.com/) og Deildarstjóri þjálfunardeildar Icelandair frá 2004-2007. Tegundarkennari (TRI) og prófdómari á Boeing 757/767 síðan 2007. Heildar flugtími um 7.000 þar af um 4.500 sem flugstjóri.
FLUGAKADEMÍA KEILIS: Hóf störf fyrir Keili árið 2007 og stofnaði Flugakademíuna. Sinnir nú stöðu skólastjóra og flugrekstrarstjóra. Stundar einnig flugkennslu.






