Flýtilyklar
Starfsfólk
Námskeið: Fagstjóri og kennari í Þjálfunaráföngum við ÍAK einkaþjálfun og ÍAK íþróttaþjálfun
Menntun: Heilbrigðistæknifræðingur M.Sc., liðfræðingur M.Tc, sjúkraþjálfari B.Sc.
íþróttakennari
Einar útskrifaðist sem íþróttakennari frá Laugarvatni árið 1986 og sjúkraþjálfari frá HÍ árið 1991. Árið 2000 lauk hann svo meistaranámi í Liðfræði frá háskólanum í St. Augustin og árið 2006 lauk hann meistaranámi í hreyfivísindum frá háskólanum í Árhúsum.
Reynsla: Samhliða námsferli sínum hefur Einar starfað við sjúkraþjálfun, knattspyrnuþjálfun og kennslu í hreyfivísindum, liðfræði og sjúkraþjálfunarfræðum.
Í dag starfar Einar sem klínískur sérfræðingur hjá KINE sem er hátæknifyrirtæki í hreyfigreiningu samhliða kennslu við Keili, HR og HÍ og styrktarþjálfun Hauka í knattspyrnu. KINE starfar á alþjóðamarkaði og Einar heldur fræðsluerindi út um allan heim en er einnig mjög iðinn við að sækja sér aukna menntun og þekkingu.





