Keilir er alhliða menntafyrirtæki í eigu háskóla, fyrirtækja og almannasamtaka

Keilir, miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs: Heilsu- og uppeldisskóli, Orku- og tækniskóli, Flugakademían og Háskólabrú sem er undirbúningsnám fyrir háskólanám

Starfsfólk

asdis-thorgilsdottir
Ásdís Þorgilsdóttir
asdisth@keilir.net

ÍAK einkaþjálfari og íþróttakennari
ÞJÁ 2203 Verkleg þjálfun og ÞJÁ 2302 Sértæk þjálfun

Ásdís útskrifaðist sem íþróttakennari frá Íþróttakennaraskóla Íslands árið 1997 og kenndi við grunnskóla í 10 ár. Árið 2008 útskrifaðist hún sem ÍAK einkaþjálfari og hefur starfað sem einkaþjálfari í um 5 ár.

Ásdís hefur frá barnæsku stundað boltaíþróttir af kappi. Knattspyrna, handbolti og körubolti áttu hug hennar allan og hefur hún unnið Íslandsmeistaratitla í öllum þeim greinum. Hún hefur spilað fyrir Íslands hönd með unglingalandsliði Íslands í handbolta og á um 30 landsleiki með unglinga og A- landsliði Íslands í knattspyrnu.
Ásdís lék fyrir Keflavík alla yngri flokka og spilaði með KR í 10 ár í knattspyrnu og uppskar með þeim nokkra Íslands- og bikarmeistaratitla. Hún tók þá við M.fl kvenna hjá Keflavík og þjálfaði og spilaði með þeim í 3 ár.

Í dag á líkamsræktin hug hennar og hjarta. Hún hefur unnið nokkra titla með liði sínu í þrekmeistaranum og varð í 3. sæti í Ice fitness keppninni í nóvember 2008.

Ásdís hnerrar alltaf þegar hún borðar súkkulaði.

Framsetning efnis

Póstlisti


moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf