Flýtilyklar
Skólar
Heilsuleikskólinn Háaleiti
Háaleitisskóli á Ásbrú
Upplýsingar um grunnskóla Reykjanesbæjar, skólastefnu o.fl. má finna hér
Frístundaskóli
Leikskólinn Völlur
Líkt og hjá öðrum leikskólum sem starfa eftir námsskrá Hjallastefnunnar er starfið kynjaskipt. Stúlkur og drengir eyða stærstum hluta dagsins sitt í hvoru lagi á sínum kjarna en daglega hittast kynin og æfa samskipti sín á milli. Í stað leikfanga er stuðst við opinn efnivið á borð við heimagerðan leir, trékubba, dýnur og púða. Lögð er áhersla á að kenna jákvæðan aga sem stuðlar að öryggi og festu í starfinu ásamt því að gefa rósemd og frið sem er mikilvægt að einkenni leikskólastarf.
Börn og starfsfólk notar skólabúninga sem styrkja liðsandann og dregur úr samkeppni milli barnanna. Reynslan hefur reynslan leitt í ljós að langflestir foreldrar eru ánægðir með skólabúningana.
Skólamáltíðir
Tónlistarskóli Reykjanesbæjar
Þann 2. september, tók til starfa nýr leikskóli á Ásbrú sem starfar eftir heilsustefnunni. Leikskólinn er staðsettur við
Lindarbraut 624, við hliðina á grunnskólanum. Á leikskólanum er lögð áhersla á næringu, hreyfingu og listsköpun. Foreldrar sem
vilja sækja um pláss á nýja leikskólanum geta gert það eins og hjá öðrum leikskólum Reykjanesbæjar inn á: www.mittreykjanes.is. Einnig er hægt að fara inn á: haaleiti.skolar.is og sækja um þar beint.
Háaleitisskóli á Ásbrú
Í Reykjanesbæ eru reknir sex grunnskólar, þar af einn á Vallarheiði, Háaleitisskóli sem opnaði haustið 2008 og býður
uppá grunnskóladeild fyrir 1. - 6. bekk og er rekinn sem útibú frá Njarðvíkurskóla. Nemendur á unglingastigi sækja nám
í Njarðvíkurskóla og gengur strætó þangað alla morgna. Skólastjóri er Lára Guðmundsdóttir og
aðstoðarskólastjóri Ásgerður Þorgeirsdóttir. Í skólanum eru 6 almennar kennslustofur, salur, kennaraaðstaða, aðstaða fyrir
tónmenntakennslu, viðtalsherbergi o.fl.. Tónlistarskólinn verður með útibú þar sem boðið er upp á kennslu í forskóla
fyrir 1. og 2. bekk ásamt hljóðfærakennslu fyrir eldri börn ef foreldrar óska þess. Boðið er upp á heitan mat í hádeginu.
Nánari upplýsingar um skólanámsskrá, Frístundaskóla, skóladagatal o.fl má finna á heimasíðu
Njarðvíkurskóla.
Upplýsingar um grunnskóla Reykjanesbæjar, skólastefnu o.fl. má finna hér
Frístundaskóli
Frístundaskólar eru starfræktir í öllum grunnskólum bæjarins, frá því að skóla lýkur og til kl. 17. Hver
skóli hefur til umráða miðstöð sem nefnd er Skjól en jafnframt er skólahúsnæði sem er ekki í notkun hverju sinni nýtt.
Í frístundaskólunum er boðið uppá reglulegar hreyfistundir og aðstoð við heimanám. Nánari upplýsingar um
frístundaskólana eru gefnar á vefsíðumskólanna. Fullt gjald í frístundaskóla er kr. 14.400,- á mánuði
miðað við fullt gjald með síðdegishressingu. Tímagjald er kr. 315,- og síðdegishressing kostar kr. 105,- Veittur er 25% systkinaafsláttur vegna
þriðja barns og 50% afsláttur vegna fjórða barns úr sömu fjölskyldu.
Leikskólinn Völlur
Leikskólinn Völlur á Ásbrú tók til starfa í
ágúst 2007. Á Velli eru börn á aldrinum 2-5 ára á sjö kjörnum (deildum). Leikskólinn er rekinn af Hjallastefnunni ehf. og starfar eftir
námsskrá Hjallastefnunnar. Miklar endurbætur voru unnar á húsnæði skólans og allur búnaður endurnýjaður til að hann
stæði jafnfætis öðrum nýjum leikskólum í Reykjanesbæ.
Líkt og hjá öðrum leikskólum sem starfa eftir námsskrá Hjallastefnunnar er starfið kynjaskipt. Stúlkur og drengir eyða stærstum hluta dagsins sitt í hvoru lagi á sínum kjarna en daglega hittast kynin og æfa samskipti sín á milli. Í stað leikfanga er stuðst við opinn efnivið á borð við heimagerðan leir, trékubba, dýnur og púða. Lögð er áhersla á að kenna jákvæðan aga sem stuðlar að öryggi og festu í starfinu ásamt því að gefa rósemd og frið sem er mikilvægt að einkenni leikskólastarf.
Börn og starfsfólk notar skólabúninga sem styrkja liðsandann og dregur úr samkeppni milli barnanna. Reynslan hefur reynslan leitt í ljós að langflestir foreldrar eru ánægðir með skólabúningana.
Skólamáltíðir
Í grunnskólum Reykjanesbæjar er boðið uppá heitar máltíðir í hádeginu. Hægt er að kaupa stakar
máltíðir eða vera í fastri áskrift, allt eftir því hvað hentar hverjum og einum. Skólamatur ehf. sér um matinn og miðar alltaf
við að bjóða upp á hollan og góðan mat og eru matseðlar, hráefni og matreiðsla í samræmi við stranga næringar- og
gæðastaðla. Nánari upplýsingar um matseðla og fyrirkomulag fást á heimasíðu Skólamatar: www.skolamatur.is
Tónlistarskóli Reykjanesbæjar
Hjá Tónlistarskóla Reykjanesbæjarer
boðið uppá fjölbreytt tónlistarnám, hljóðfæranám, forskóla og Suzuki nám fyrir yngstu kynslóðina,
tónfræðinám og söngnám ásamt lúðra- og strengjasveit. Tónlistarskólinn rekur útibú í öllum
grunnskólum bæjarins og hafa nemendur kost á að stunda nám að hluta til á skólatíma. Allar nánari upplýsingar um
námsframboð og skólagjöld fást á heimasíðu skólans, reykjanesbaer.is/tonlistarskoli
Hægt er að ráðstafa hvatagreiðslum Reykjanesbæjar upp í skólagjöld í tónlistarskólanum.
Hægt er að ráðstafa hvatagreiðslum Reykjanesbæjar upp í skólagjöld í tónlistarskólanum.
Á næstunni
18.02.2012





