Flýtilyklar
Atvinnumál
Virkjun mannauðs - stuðningur við atvinnulausa
Virkjun mannauðs á Reykjanesi hóf starfsemi sína sl. mánudag. Virkjun er til húsa í byggingu 740 á Vallarheiði en þar er verið
að byggja upp starfsemi fyrir íbúa á Reykjanesi sem leita nýrra tækifæra í atvinnu eða námi. Þá verður Virkjun ekki
síður samkomustaður fólks sem vill breyta því áfalli sem atvinnuleysi er í ný tækifæri á atvinnumarkaði með
námi, námskeiðum eða mannbætandi tómstundum og menningarstarfsemi sem einnig verður í boði í Virkjun. Virka daga er Virkjun opin frá
kl. 9:00-16:00.
Vinnuskóli Reykjanesbæjar
Vinnuskóli Reykjanesbæjar
Vinnuskóli Reykjanesbæjar er vinnustaður unglinga á aldrinum 14 til 16 ára og eru helstu verkefni skólans almenn hreinsun á opnum svæðum,
tyrfing og beðahreinsun, sláttur og rakstur og sláttur í görðum ellilífeyrisþega og öryrkja. Elstu nemendur hafa einnig kost á að sinna
sérverkefnum eins og aðstoð á íþrótta- og leikjanámskeiðum, í stofnunum bæjarins, á golfvellinum o.fl. Einnig fá
unglingarnir fræðslu og farið er í stutt ferðalög.





