Flýtilyklar
Ásbrú
Fjölbreytt þjónusta innan seilingar
Ásbrú - samfélag frumkvöðla, fræða og atvinnulífs
Nánari upplýsingar um svæðið í heild má nálgast á heimasíðu Ásbrúar: http://www.asbru.is/
Önnur þjónusta á Ásbrú
Þjónusta á Ásbrú hefur aukist jafnt og þétt og má segja að á þeim stutta tíma sem liðinn er frá
því starfsemi hófst aftur á svæðinu hafi þjónustustigið hækkað ótrúlega hratt. Í veftrénu til vinstri eru
upplýsingar um helstu þjónustu sem í boði er bæði á Ásbrú og í Reykjanesbæ og fyrir neðan má finna tengla inn
á ýmis fyrirtæki og þjónustuaðila á svæðinu.
Ásbrú - samfélag frumkvöðla, fræða og atvinnulífs
Ásbrú er nafn á uppbyggingu sem hefur átt sér stað á fyrrum varnarsvæði Nató við Keflavíkurflugvöll.
Svæðið hefur á undurskömmum tíma breyst í samfélag frumkvöðla, fræða og atvinnulífs. Hér er stærsti
háskólagarður Íslands, metnaðarfullt nám hjá Keili, eitt stærsta frumkvöðlasetur landsins, auk fjölda annarra spennandi verkefna
á borð Orkurannsóknarsetur og fyrsta græna gagnaver Íslands.
Nánari upplýsingar um svæðið í heild má nálgast á heimasíðu Ásbrúar: http://www.asbru.is/
Önnur þjónusta á Ásbrú
Við Keilisbraut er Langbest, glæsilegur fjölskylduvænn veitingastaður og kaffihús sem tekur um 100 manns í sæti.
Íþróttahús og líkamsræktaraðstaða opnuðu í desember 2007 og geta íbúar á Ásbrú nýtt sér
þá aðstöðu gegn vægu gjaldi. Tvöföld Reykjanesbraut gerir allar samgöngur við höfuðborgarsvæðið auðveldar og aðeins
er um 20 mín. akstur frá Ásbrú í Hafnarfjörð.
Ýmsir tenglar á þjónustu á Ásbrú og í Reykjanesbæ
Á næstunni
18.02.2012






