Flýtilyklar
Frá framkvæmdastjóra Keilis

Keilir er hlutafélag. Meðal eigenda eru Háskóli Íslands, Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, rannsóknarstofnanir, orku- og
fjármálafyrirtæki, sveitarfélög, almenningssamtök, flugfélag og verkalýðsfélög.
Stjórn Keilis er skipuð eftirtöldum aðilum: Árni Sigfússon, stjórnarformaður, Jón Atli Benediktsson, varaformaður, Kjartan
Eiríksson, Ásgeir Margeirsson, Einar Hannesson, Eiríkur Hjálmarsson og Halldór Jónsson.
Framkvæmdastjóri Keilis er Hjálmar Árnason.
Veturinn 2011 eru rúmlega 600 nemendur skráðir í nám hjá Keili. Keilir starfrækir bæði námsbrautir á
háskólastigi og framhaldsskólastigi. Skólanum er ætlað að fylla í eyður í skólakerfinu og vera í nánum tengslum
við atvinnulífið – ekki síst þau fyrirtæki sem hasla sér völl á Ásbrú. Allt nám Keilis á
háskólastigi skal vottað af Háskóla Íslands, stærsta hluthafanum í Keili. Keilir byggist sem stendur upp á fjórum mismunandi
skólum.
Háskólabrú
Á Háskólabrú fer fram undirbúningsnám fyrir háskólanám. Nemendur skulu hafa lokið um 70 einingum í framhaldsskóla
en ljúka að ári liðnu námi á Háskólabrú sem veitir inngöngu í háskóla. Námsskrá
Háskólabrúar hefur verið sniðin að óskum deilda Háskóla Íslands. Fyrrum nemendur af Háskólabrú stunda nú
nám í ýmsum innlendum og erlendum háskólum.
Forstöðukona Háskólabrúar er Soffía Waag Árnadóttir
Heilsuskóli
Heilsuskóli Keilis leggur áherslu á að þróa og bjóða uppá framúrskarandi nám á sviði heilsu, heilbrigðis,
íþrótta- og uppeldisfræða. Nú þegar er kennd við skólann ÍAK einkaþjálfun sem hefur vakið verðskuldaða athygli og
nýtur mikilla vinsælda. Aðstaða nemenda til náms og þjálfunar er einstaklega góð í stóru fjölnota
íþróttahúsi á Ásbrú. Innan heilsuskólans er m.a. unnið að nýjum námsbrautum, s.s. heilsuþjónustu,
sjúkranudd og fíkniráðgjöf og forvarnir.
Forstöðukona Heilsuskóla er Gunnhildur Vilbergsdóttir
Orku- og tækniskóli
Orku- og tækniskóli Keilis býður upp á þverfaglegt nám í orku- og umhverfistæknifræði og mekatróník
tæknifræði (e. mechatronics) í samstarfi við verkfræðideild Háskóla Íslands Verklegar æfingar og rannsóknir nemenda fara fram
í fyrsta flokks tilrauna- og rannsóknaraðstöðu í orkufræðum hjá Orku- og tækniskóla Keilis. Áhersla er lögð á
að mennta sjálfstæða nemendur sem búa yfir mikilli greiningarhæfni, verkþekkingu og færni til að skapa og þróa nýjar
tæknilausnir. Markmiðið er að útskrifaðir nemendur skólans verði eftirsóttir starfskraftar fyrir bæði íslenskan sem og erlendan orku-
og tækniiðnað.
Forstöðumaður Orku- og tækniskóla er Dr. Karl Sölvi Guðmundsson
Flugakademían
Flugakademía Keilis stefnir að því að hafa allt flugtengt nám undir einum hatti og skipa því verðugan sess í skólakerfinu.
Þegar erum við með í gangi einka- og atvinnuflugnám, flugrekstrarnám, flugþjónustunám og nám í flugumferðarstjórn
Lögð er áhersla á nútímalega kennsluhætti og kennsluumhverfi en staðsetning skólans felur í sér einstakt tækifæri til
þess að skapa frábæra aðstöðu til kennslu flugtengdra greina. Þegar á Keilir fimm glænýjar og fullkomnar kennsluflugvélar af
gerðinni Diamond.
Skólastjóri Flugakademíu er Kári Kárason
Fjarnám Keilis
Keilir hefur lagt þunga áherslu á að tileinka sér nýjustu og bestu tækni í fjarnámi. Margar af námsbrautum okkar má stunda
í fjarnámi. Í megindráttum er það byggt upp á því að kennarar setja kynningar sínar og glærur á netið, tala
skýringar sínar með, jafnvel bæta inn teikningum og skýringarmyndum eftir þörfum, slóðir að lifandi myndum o.s.frv. Nemendur geta borið
fram spurningar sem kennari svarar reglulega. Þá geta nemendur spjallað saman um efnið á netinu. Aðgang að þessum þáttum hefur nemandinn
hvenær sem honum hentar og jafn oft og hinum sýnist. Þannig má segja að með fullkominni tækni standi Keilir að mjög einstaklingsmiðuðu
námi sem auðveldar mörgum að stunda nám.
Á næstunni
18.02.2012





