Flýtilyklar
Tölvuþjónusta
Í tölvuþjónustu Keilis er hægt að fá aðstoð við ýmis vandamál tengt tölvum, s.s. lykilorð nemenda, prentun og annað.
Starfsmaður í tölvuþjónustu er til staðar fyrir nemendur alla virka daga frá klukkan 8:30 til 12:30. Hann er staðsettur á móti
aðalskrifstofunni. Agnar Guðmundsson, sér um tölvukerfi Keilis og þjónustu við nemendur.
Tölvupóstur
Tölvunet Keilis
Tölvunet Keilis samanstendur af tölvupóstkerfi, prentkerfi, þráðlausu neti og kennslukerfi. Einnig hafa nemendur aðgang að upplýsingakerfinu
Innu. Þessar leiðbeiningar fjalla stuttlega um hvernig aðgengi að þessum þjónustuliðum er háttað. Nemendur þurfa að vera með Office
2007 pakkann uppsettan á tölvum sínum. Þeir sem nota Apple tölvur þurfa að vera með Mac office 2008 uppsett á vélunum hjá
sér.
Tölvupóstur
Tölvupóstur nemenda í Keili er aðgengilegur í gegnum vefslóðina http://postur.keilir.net eða af heimasíðu skólans valmynd efst á síðu, með því að smella
á Vefpóstur.
Notandanafnið ykkar fáið þið afhent við upphaf skólans og þar kemur einnig fram lykilorðið. Það notið þið til að
skrá ykkur inn á tölvupóstinn ykkar. Mjög mikilvægt er að fylgjast a.m.k. einu sinni á dag með tölvupóstinum því
skólinn notar það netfang til að koma til ykkar upplýsingum, einnig fara mikilvægar upplýsingar úr kennslukerfi sjálfvirkt í
tölvupóstinn ykkar.
Netfang ykkar er notandanafnið að viðbættu @keilir.net en það kemur fram í gögnunum sem þið fáið afhent í upphafi
skólaárs.
Þráðlaust net
Hjá Keili er þráðlaust net. Það er opið og ekki þarf innskráningarlykil til að tengjast því. Netið hefur nafnið
KEILIR-Nemendur. Athugið að ekki er leyfilegt að nota netið í skólanum til að sækja höfundaréttavarið efni en nemendur er þó
hvattir til þess að nýta sér netið ríkulega til upplýsingaöflunar og þess sem nýtist nemendum við nám.
INNA
Þið komist í Innu annað hvort af heimasíðu skólans (sjá hér að ofan) eða með því að fara á
slóðina https://www.inna.is/Nemendur. Notið þar, eins og í hinum kerfunum, notandanafnið
og lykilorðið sem þið fáið afhent í upphafi skólaárs.
Kennslukerfi Keilis heitir Moodle. Það má komast af heimasíðu Keilis úr valmyndinni efst á síðu. Einnig er hægt að fara beint
í kennslukerfið með slóðinni http://moodle.keilir.net. Notið sama notandanafn og
lykilorð og notað er í vefpóstinn og Innu.
Prentkerfið
Til að nota prentkerfið þá þarf að sækja aðgangskubb hjá þjónustufulltrúa á aðalskrifstofu skólans.
Aðgangskubburinn er einnig notaður til að komast inn í skólann. Það þarf að greiða 3.000 krónur fyrir aðgangskubb en 2.000 krónur
eru endurgreiddar þegar honum er skilað við lok náms. Því næst þarf að sækja forrit. Forritið er aðgengilegt aðeins innan
skólans af vefsíðunni http://net.keilir.net. Hægri smella þarf á forritið Staðarnemendur,
velja það að vista forritið á skjáborðið. Það er „save target as...“ og velja „desktop“ og Save. Þá kemur
tákn á skjáborðið sem smellt er á þegar þú vilt prenta.

Í fyrsta sinn sem smellt er á táknið spyr forritið um notandanafn og lykilorð. Vandið vel en þetta þarf aðeins að gera einu sinni.
Síðan ef það þarf að tengja prentarann aftur þá smellið þið á táknið. Nú þegar prentað er út,
þá berið aðgangslykilinn að talnaborðinu við prentarann og veljið „Print“.
Þegar prentarinn er notaður, reynið að prenta eins mikið og hægt er á báðar hliðar „two side printing“ enda sparast inneign ykkar
með því.
Að spara prentkvóta - umhverfisvernd
Hjá Keili er lögð áhersla á umhverfisvernd, öllum pappír er skilað til endurvinnslu og eru nemendur kvattir til að koma afgangspappír
í grænu tunnurnar sem eru hjá prenturum. Stór þáttur í umhverfisvernd felst í því að takmarka notkun á pappír eins
og mögulegt er. Það biðjum við nemendur að hafa í huga í hvert skipti sem prentað er út.
Nokkur atriði er gott að hafa í huga:
- Prentum og ljósritum báðum megin á blöðin, sé þess kostur. Það má gera með því að velja einfalda aðgerð þegar prentskipun er valin í tölvunni, veljið prentun og í valglugganum er hakað við, print on both sides. Þessi aðgerð sparar prentkvótann hjá nemendum.
- Fleiri leiðir eru til þess að spara pappír, mjög góð regla er að setja alltaf blaðsíðutal á glósur og stærri bunka sem prenta á út.
- Einnig er hægt að minnka spássíðu, línubil og jafnvel stafi. Notið bakhliðar og misheppnaðar útprentanir fyrir uppköst og rissblöð.
- Þegar glærur eru prentaðar út tveir möguleikar til þess að spara pappír:
-
- Að velja handouts í flettilistanum og haka við 3 slides per page, þá koma glærurnar með línum til hliðar til þess að skrifa á glósur.
- Hinsvegar að velja handouts og 6 eða 9 slides per page.
Á næstunni
18.02.2012





