Keilir er alhliða menntafyrirtæki í eigu háskóla, fyrirtækja og almannasamtaka

Keilir býður nemendum með fatlanir og sértæka námsörðugleika velkomna til náms í skólanum. Skólinn leggur áherslu á að veita nemendum sérstaka þjónustu

Sérúrræði og lesblinda

Keilir býður nemendum með fatlanir og sértæka námsörðugleika velkomna til náms í skólanum. Skólinn leggur áherslu á að veita nemendum sérstaka þjónustu til að ná árangri í námi þrátt fyrir hömlun sína. Helstu úrræði sem i boði eru:

  • Stuðningsviðtöl við námsráðgjafa
  • Lengdur próftími
  • Breytt letur / stækkað letur
  • Skönnun námsefnis og talgervill
  • Próftöku á tölvu
  • Meira næði, sérstofa fyrir nemendur með lengri próftíma
  • Glósuvinur 

Lesblinda

Í stuttu máli má segja að dyslexía eða lesröskun sé heiti yfir námsörðugleika sem koma fram þegar unnið er með talað eða ritað mál. Vandamál geta komið fram í lestri, stafsetningu, tjáningu eða hlustun. Dyslexía er ekki sjúkdómur. Þeir sem greinast með dyslexíu eru yfirleitt hæfileikaríkir einstaklingar sem læra á annan hátt en almennt gerist. Greind þeirra er ekki vandamálið. Það er mismunur á milli námshæfileika þeirra og námsárangurs sem ekki á sér augljósar skýringar. 

Orsakir dyslexíu er að finna í uppbyggingu og starfsemi heilans. Hver einstaklingur er sérstakur, sérhver á sér sínar sterku og veiku hliðar. Þessir nemendur sýna oft sérstaka hæfileika á sviðum sem krefjast samþættingar sjónskynjunar, rúmskynjunar og hreyfinga. Margir með dyslexíu hafa einstaka hæfileika á sviðum eins og í listum, íþróttum, húsagerðarlist, rafeindatækni og verkfræði. 

Það sem er þeim sameiginlegt er að eiga í vandræðum með tungumálið. Það merkir að þeir sem greinast með dyslexíu eiga í erfiðleikum með að umskrá málið yfir í hugsun (þegar verið er að hlusta eða lesa) eða hugsun yfir í tungumálið (eins og við stafsetningu, ritun og munnlega tjáningu). ©Elín Vilhelmsdóttir

Dagatal

« Febrúar 2012 »
SMÞMFFL
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829 

Á næstunni

empty
empty1

Framsetning efnis

Póstlisti


moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf