Keilir er alhliða menntafyrirtæki í eigu háskóla, fyrirtækja og almannasamtaka

Skrifstofa náms- og starfsráðgjafa er staðsett við aðal skrifstofu Keilis. Opnir viðtalstímar eru á mánudögum, miðvikudögum og fimmtudögum milli 9:30 og

Náms- og starfsráðgjöf

Skrifstofa náms- og starfsráðgjafa er staðsett við aðal skrifstofu Keilis. Opnir viðtalstímar eru á mánudögum, miðvikudögum og fimmtudögum milli 9:30 og 11:30. 

Meginhlutverk náms- og starfsráðgjafar er að veita nemendum margvíslegan stuðning í námi og er markmið hennar að stuðla að aukinni vellíðan og árangri nemenda.

Sigrún Arnardóttir er náms- og starfsráðgjafi Keilis. Netfang náms- og starfsráðgjafa er: sigrun@keilir.net


Helstu viðfangsefni ráðgjafarinnar eru:

  • Ráðgjöf um vinnubrögð og námstækni
  • Upplýsingagjöf um námsleiðir og störf til núverandi og verðandi nemenda skólans
  • Ráðgjöf og úrræði vegna fötlunar eða sértækra námsörðugleika
  • Að veita nemendum persónulega ráðgjöf
  • Starfsráðgjöf og ráðgjöf um gerð atvinnuumsókna
  • Að efla sjálfsþekkingu nemenda með viðtölum og verkefnum 
Fátt mannlegt er náms- og starfsráðgjafanum óviðkomandi. Hann ber virðingu fyrir þér sem persónu og hlustar af athygli. Hann segir þér ekki hvað þú átt að gera en aðstoðar þig við að finna þínar leiðir.


Námskeið

Ýmis styttri og lengri námskeið um ofangreind efni eru í boði, auglýst sérstaklega hverju sinni. Gefið ykkur tíma til að sækja námskeið til að skerpa á námstækninni og auka þannig afköst og árangur, það er fljótt að skila sér. 


Úrræði í námi vegna fötlunar eða sértækra námsörðugleika

Náms-og starfsráðgjöf skólans hefur yfirumsjón með sérúrræðum og skal nemandi sem óskar eftir slíku gefa sig fram við námsráðgjöf. Vegna allra sérúrræða skal nemandi skila inn greiningu eða vottorði frá þar til bærum aðila. Ef um sérúrræði á námstíma er að ræða, þarf að skila vottorði/ greiningu strax í fyrstu kennsluviku. Ef um sérúrræði í prófum er að ræða skal skila í síðasta lagi mánuði fyrir fyrsta próf. Sé greiningu/ vottorði skilað eftir þennan tíma er ekki öruggt að náist að ganga frá sérúrræðum. Því er áríðandi að nemendur virði þessi tímamörk. 

Hægt er að panta tíma hjá námsráðgjafa með því að hringja í síma 578 4000 eða senda tölvupóst á: sigrun@keilir.net 

Dagatal

« Febrúar 2012 »
SMÞMFFL
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829 

Á næstunni

empty
empty1

Framsetning efnis

Póstlisti


moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf