Flýtilyklar
Aðstaða í íþróttahúsi
Aðalsalurinn
Stór glæsilegur salur þar sem hægt er að spila handbolta, fótbolta, körfubolta, blak, badminton, boggia ofl. Salurinn er líka kjörinn til námskeiðahalds og fjölmennari fundarhalda. Hægt er að skipta salnum í tvennt þannig að fleiri en einn hópur geti notað salinn í einu.
Veggtennissalir
Lyftingarsalur
Upphitunarsalur
Yoga, eróbik, danssalur
Sauna
Fyrir hvern hentar húsið?
Óvissuferðir, vinnustaðir, hópar, íþróttafélög


Stór glæsilegur salur þar sem hægt er að spila handbolta, fótbolta, körfubolta, blak, badminton, boggia ofl. Salurinn er líka kjörinn til námskeiðahalds og fjölmennari fundarhalda. Hægt er að skipta salnum í tvennt þannig að fleiri en einn hópur geti notað salinn í einu.
Veggtennissalir
Í húsinu eru tveir löglegir veggtennissalir sem nýlega voru teknir í gegn. Vinsældir veggtennis eða skvass hafa aukist gríðarlega
bæði hér á Íslandi og erlendis undanfarin ár, bæði vegna þess hversu skemmtilegt það er, en líka hversu góð hreyfing
skvass er fyrir alla vöðva líkamans. Auk þess eru tveir aðrir salir í sömu stærð sem hægt er að nota undir eróbik, jóga,
körfubolta, karate ofl.
Lyftingarsalur
Vel búinn lyftingarsalur er í húsinu.Tækin er í góðu ásigkomulagi og henta öllum vel sem vilja styrkja á sér kroppinn og
vera í góðu líkamlegu formi. Hægt er að fá kennslu á tækin og prógram til að lyfta eftir.
Upphitunarsalur
Rúmgóður salur með hlaupabrettum, hjólum, stigvélum, dýnum og boltum til að gera maga og teygjuæfingar auk sippubanda til upphitunar fyrir
æfingu eða til að slaka á og teygja eftir æfingu.
Yoga, eróbik, danssalur
Stórskemmtilegur parketlagður salur með góðri lýsingu og speglum er á efri hæð hússins þar sem hægt er að stunda allt
milli himins og jarðar en myndi henta sérstaklega vel í yoga, eróbik, dans, bardagaíþróttir eða annað þess háttar.
Sauna
Þægilegir saunaklefar eru í búningsklefum beggja kynja í húsinu þar sem gott er að hvílast og slaka á eftir erfiða
æfingu.
Fyrir hvern hentar húsið?
Mannflóran sem stundar húsið núna er á öllum aldri eða allt frá átta ára aldri til fólks á
níræðisaldri. Maður er aldrei of gamall til að hreyfa sig. Góð hreyfing skilar sér sjálfkrafa í betri líðan og meiri orku til
að starfa.
Óvissuferðir, vinnustaðir, hópar, íþróttafélög
Hjá Íþróttavöllum er boðið upp á þjónustu og aðstoð við að skipuleggja leiki og æfingar.
Íþróttavellir henta sérstaklega vel hópum, vinnustöðum og íþróttafélögum til að koma og stunda æfingar eða
koma sér til skemmtunar og afþreyingar. Hægt er að fá úrvals gistingu hér á Vellinum en einnig er ýmis afþreying hér í
næsta nágrenni fyrir hópa sem eru í óvissuferð og vilja koma hér við í leiðinni og hrista á sér skankanna og skola af
sér skítinn.


Á næstunni
18.02.2012





