Flýtilyklar
Um bókasafnið
Bókasafnið er upplýsingamiðstöð fyrir nemendur og starfsfólk skólans. Safnið er staðsett miðsvæðis í skólahúsnæði Keilis á Ásbrú. Á safninu eru vinnuborð og aðstaða fyrir u.þ.b. 25 manns, hluti af safninu er lessalur sem nefnist Grafarþögn.

Í lessalinn eru básar þar sem nemendur geta lært í kyrrð og ró og einbeitt sér að náminu án truflunar frá
símhringinum og skvaldri. Við minnum nemendur á að taka tillit til annarra nemenda í lessal, ganga snyrtilega um og hafa síma stillta á þögn.
Vera má með kaffi og vatn í lessalnum en enginn matur er leyfilegur. Nemendur hafa aðgang að Grafarþögn til kl. 22:45 alla daga. Nemendur Keilis eru hvattir til
þess að notfæra sér lesbásanna.
Á safninu er tölva til skammtímanota. Hún er eingöngu til upplýsingaleita og fyrir kennslu. Nemendur geta fengið kennslu í
upplýsingalæsi og heimildaleit. Kennslan tekur um 45 mín.
Safnkosturinn er skráður í bókasafnskerfið Gegnir sem er
samskrá íslenskra bókasafna. Í Gegni er hægt að fá upplýsingar um bækur, tímarit og annan safnkost mismunandi safnategunda, s.s.
almennings-, skóla- og rannsóknasafna.
Afgreiðslutími
Bókasafnið í Keili er opið alla kennsludaga. Bókasafns- og upplýsingafræðingur er við frá kl. 10:00 til 16:00.
Sími: 578 4007 | 578 4000
Netfang: stefania@keilir.net | bokasafn@keilir.net
Bókasafn Reykjanesbæjar er opið
mánudaga til föstudaga frá kl. 10:00 til 19:00. Á bókasafninu er herbergi með góðri les- og vinnuaðstöðu fyrir 17 manns auk borða
víðsvegar um safnið. Safnkostur Bókasafns Reykjanesbæjar er skráður í Gegni.
Aðrar lesaðstöður
Bókasöfn
Símenntunarstöðvar
Reglur
- Safnið er ætlað nemendum, kennurum og starfsfólki Keilis
- Notendur safnsins sýni öðrum gestum tillitsemi svo hægt sé að sinna námi í ró og næði á bókasafninu
- Óheimilt er að tala í farsíma á bókasafninu
- Við neytum ekki matar á safninu
- Allar bækur sem farið er með út af safninu þarf að skrá út
- Afhenda þarf starfsmanni skiluðum bókum
Á næstunni
18.02.2012





