Keilir er alhliða menntafyrirtæki í eigu háskóla, fyrirtækja og almannasamtaka

Tækni- og vísindabókasafn Íslands býðst til að varðveita tæknibækur þínar Bókasöfnun Orku- og tækniskóla Keilis hófst formlega í byrjun árs 2010.

Tækni- og vísindabókasafn

Tækni- og vísindabókasafn Íslands býðst til að varðveita tæknibækur þínar

Bókasöfnun Orku- og tækniskóla Keilis hófst formlega í byrjun árs 2010. Markmiðið er að safna allt að 10,000 eintökum af verk- og tæknifræðibókum. Óskað er eftir bókum á íslensku, ensku, dönsku, norsku, sænsku, þýsku, frönsku og spænsku. 

Nýtt Tækni- og vísindabókasafn Íslands óskar eftir bókum um tækni, vísindi, rannsóknir, verkfræði, endurnýjanlega orkugjafa, nýsköpun og fl. Við þiggjum einnig tímarit um svipað efni. Safnið er ætlað að þjóna stúdentum og kennurum við Keili auk annarra háskóla, fyrirtækja og einstaklinga. 

Það er markmið Orku- og tækniskólans að koma sér upp með tímanum vönduðu bókasafni á sínum sérsviðum með tilheyrandi áskrift sérrita o.fl. Því hefur komið fram þessi ágæta hugmynd að óska eftir samstarfi við félög verk- og tæknifræðinga um að leita sameiginlega til yngri og eldri tækni- og verkfræðinga svo og verkfræðistofa, orkufyrirtækja o.fl., um að gefa bókasafninu bækur og tímarit til varðveislu, ekki hvað síst eldri handbækur sem erfitt er að nálgast. Bækurnar verða skráðar í safnið til varðveislu með nafni viðkomandi gefanda. Fjárframlög til bókakaupa verða einnig vel þegin. 

Með þessu móti er það von okkar að með tímanum verði bóksafn okkar veglegt á sínum sérsviðum og aðgengilegt fyrir einstaka tækni- og verkfræðinga, verkfræðistofur og fyrirtæki vegna sérhæfðra verkefna, framkvæmda og rannsókna fyrir utan nám nemenda okkar og kennara þeirra. 

Ef eftir því er óskað þá er hægt að sækja bókargjafir á staðinn. 

Senda má bækur og tímarit til: 

Tækni- og orkuskóla Keilis
Grænásbraut 910, Ásbrú 
235 Reykjanesbæ 


Bókasafninu hefur nú þegar borist bækur í kassavís frá Landsbókasafni og Orkustofnun.

Aðilar sem taka á móti bókargjöfum fyrir hönd Keilis á Reykjvíkursvæðinu: 

Bókasafn Seltjarnaness, Eiðistorgi 11, 170 Seltjarnarnes 
Bókasafn Hafnarfjarðar, Strandgötu 1, 220 Hafnarfirði 
Orkustofnun, Grensásvegi 9, 108 Reykjavík 

Dagatal

« Febrúar 2012 »
SMÞMFFL
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829 

Á næstunni

empty
empty1

Framsetning efnis

Póstlisti


moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf