Keilir er alhliða menntafyrirtæki í eigu háskóla, fyrirtækja og almannasamtaka

Alfræði-, gagna- og greinasöfn Britannica (Akademic) alfræðisafnið á vefnum er bæði ritskoðað og ritrýnt (ólíkt wikipedia) og má því vitna til þess sem

Heimildarleit - Heilsu- og uppeldisskólinn

Alfræði-, gagna- og greinasöfn

Britannica (Akademic) alfræðisafnið á vefnum er bæði ritskoðað og ritrýnt (ólíkt wikipedia) og má því vitna til þess sem heimild í ritgerðum og verkefnum. Einnig er hægt að fletta í ensku orðabók Merriam-Webster, finna landakort, tilvitnanir, kynningar á klassískum bókmenntum, myndskeið, landfræðilega tölfræði og fleira.
Proquest gagnasafnið veitir aðgang á rafrænu formi að útgefnu prentuðu efni úr bókum, tímaritum og dagblöðum. Áætlað er að það innihaldi um 125 milljarða síðna. Efst til hægri á hverri síðu undir „help“ er hægt að fá leiðbeiningar um notkun þess hluta gagnasafnsins sem notandi er staddur á hverju sinni, t.d. val á gagnabönkum, einföld leit og ítarleit.
Gegnir.is geymir upplýsingar um safnkost flestra íslenskra bókasafna. Hægt er að leita að heimildum og öðrum gögnum og notendur geta skráð sig inn til að fá yfirlit yfir útlán sín, framlengt lánum og pantað bækur. Leiðbeiningar um notkun Gegnis er að finna undir hjálp, efst til hægri á upphafssíðu.
Greinasafn Morgunblaðsins veitir aðgang að öllum greinum sem birst hafa í Morgunblaðinu frá 1986 til dagsins í dag. Hægt er að leita eftir efnisorðum, hvenær greinin birtist og hlutum blaðsins (t.d. innlendar fréttir, lesbók, íþróttir o.s.frv.). Á bókasafni Keilis er hægt að fá lykilorð til þess að ná í greinarnar.
Tímarit.is er stafrænt bókasafn þar sem veittur er aðgangur að þúsundum myndaðra blaðsíðna á stafrænu formi af þeim prentaða menningararfi sem varðveittur er í blöðum og tímaritum frá Færeyjum, Grænlandi og Íslandi. Aðgangur er öllum opinn.
SpringerLink er gagnasafn 1300 tímarita, einkum raunvísinda og læknisfræði. Heildartextar eru án endurgjalds, oft allt frá 1995.


Orðabækur og uppflettirit

Ordabok.is er ensk-íslensk og íslensk-ensk orðabók sem hægt er að gerast áskrifandi að og nota til uppflettingar.
Vefbækur.is, safn verka á rafrænu formi, s.s. orðabóka og annarra uppflettirita. Aðgangur að vefbókunum er í gegnum handhægt forrit sem veitir aðgang að vefbókunum í áskrift.
Dictionary.com, ensk-ensk orðabók, meðal annars samheitaorðabók og vélrænar þýðingar.
Merriam-Webster Online, ensk-ensk orðabók, meðal annars samheitaorðabók.
LEO, þýsk-ensk, þýsk-frönsk, þýsk-ítölsk, þýsk-spænsk og þýsk-kínversk veforðabók.


Valin vefsetur

Doktor.is inniheldur upplýsingar unnar af fagfólki um heilsufar, hollustu, sjúkdóma, lyf og fleira sem tengist heilbrigðismálum.
Fitnessfréttir, tímarit sem fjallar um líkamsrækt og mataræði. Fjallað um ýmis mál tengd líkamsrækt, mataræði og heilsu. Yfirleitt er heimilda getið í lok hverrar greinar.
Golfsamband Íslands
Heilsuhringurinn.  Fræðsla um heildrænar leiðir til að viðhalda heilbrigði og bent á áhugaverðar nýjungar á sviði lækninga.
Knattspyrnusamband Íslands
K
örfuboltaþjálfun - æfingar
K
örfuknattleiksdómarafélag Íslands
Körfuknattleikssamband Íslands
Lesvefurinn, vefur um læsi og lestrarerfiðleika.
Lýðheilsustöð er hluti af lýðheilsustarfsemi sem leitast við að viðhalda og efla heilbrigði fólks, með forvörnum og samfélagslegri ábyrgð á heilbrigði. Starfið byggist á samstarfi ólíkra fræðigreina og tekur m.a. til félags-, umhverfis- og efnahagsmála.
Netla, veftímarit um uppeldis- og menntamál.
Rauði krossinn, fræðsla og útgáfa.
Recall.is, þú setur þínar eigin glósur inn í forritið.
Skólavarðan er málgagn Kennarasambands Íslands.
Skólavefurinn, náms- og fræðsluvefur.
Sundsamband Íslands
Tímarit félagsráðgjafa
Tímarit Heimilis og skóla gefið út af Landssamtökum foreldra.
Tímarit um félagsvísindi
Tímarit um menntarannsóknir gefið út af félagi um sama efni.
Vefsetur Landlæknisembættisins miðlar upplýsingum og leiðbeiningum í samræmi við hlutverk Landlæknisembættisins og kemur á framfæri tilkynningum um heilsuvernd og varnir gegn sjúkdómum.
Vísindavefurinn er rekinn af Háskóla Íslands og fjallar um öll vísindi, hverju nafni sem nefnast, allt frá stjörnufræði til handrita og frá sameindalíffræði til sálarfræði. Notendur senda fyrirspurnir og vísindamenn svara.
Þroskaþjálfinn, fagblað þroskaþjálfafélags Íslands.

Framsetning efnis

Póstlisti


moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf