Keilir er alhliða menntafyrirtæki í eigu háskóla, fyrirtækja og almannasamtaka

Bókasafn Keilis veitir persónulega þjónustu og styður nám og kennslu við skólann. Þjónustan við notendur felst einkum í: Faglegri

Bókasafn Keilis


Bókasafn Keilis veitir persónulega þjónustu og styður nám og kennslu við skólann. Þjónustan við notendur felst einkum í:

  • Faglegri upplýsingaþjónustu
  • Leiðbeiningum við heimildaleit
  • Leiðbeiningum við upplýsingalæsi
  • Úrvinnsla heimilda
  • Útlánum
  • Margs konar námsaðstoð  

Samstarf við Bókasafn Reykjanesbæjar 

Á milli Bókasafns Reykjanesbæjar og Keilis er þjónustusamningur þar sem nemendur Keilis fá fullan aðgang að safnkosti og þjónustu bókasafns Reykjanesbæjar. Samningurinn felur m.a. í sér að:

  • Nemendur Keilis fá frí lánþegaskírteini gegn framvísun skólaskírteinis
  • Nemendur Keilis fá upplýsingaþjónustu og aðstoð við heimildaleit
  • Nemendur Keilis fá safnkennslu í upplýsingalæsi
Bókasafns- og upplýsingafræðingur er á vakt í Keili alla kennsludaga frá kl. 10.00 til 16:00 Fyrirspurnir má senda á  bokasafn@keilir.net þar sem bókasafns- og upplýsingafræðingur annst alla upplýsingaþjónustu.


Netspjallið - Fyrirspurn til bókasafnsfræðings

Ertu með spurningu? Þarftu aðstoð? Með netspjallinu færðu beint samband við bókasafn Keilis.

Gerðu grein fyrir þér með því að skrifa Keilis netfangið þitt í neðsta dálkinn (edit nickname), skrifaðu inn fyrirspurn í reitinn fyrir ofan, og þér verður svarað um hæl. Öll samskipti birtast í stóra glugganum. Bóksafns- og upplýsingafræðingur í Keili er á upplýsingavaktinni alla skóladaga milli kl. 10:00 og 16:00. Ef enginn er við má leggja inn spurningu þar sem hann sér skilaboðin og sendir svar í tölvupósti von bráðar.

Dagatal

« Febrúar 2012 »
SMÞMFFL
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829 

Á næstunni

empty
empty1

Framsetning efnis

Póstlisti


moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf