Keilir er alhliða menntafyrirtæki í eigu háskóla, fyrirtækja og almannasamtaka

Öll kennsla hjá Keili fer fram undir einu þaki, í húsnæði skólans að Grænásbraut 910. Húsið hýsti áður gagnfræðaskóla Varnarliðsins og var endurskipulagt

Húsnæði og aðstaða hjá Keili

Öll kennsla hjá Keili fer fram undir einu þaki, í húsnæði skólans að Grænásbraut 910. Húsið hýsti áður gagnfræðaskóla Varnarliðsins og var endurskipulagt og tekið í gegn árið 2010 með þarfir Keilis í huga. Húsnæðið miðar við að skapa nemendum gott vinnuumhverfi og góða aðstöðu til að sinna námi sínu.


Opnunartími skólans og aðgangskubbar

Húsnæði skólans er opið frá kl. 7:45 til kl. 16:00. Skrifstofa skólans er opin frá kl. 8:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 alla virka daga

Frá kl. 16:00 til 22:50 er hægt að komast inn í skólann með sérstökum aðgangskubbi sem nemendur Keilis geta keypt sér. Hægt er að sækja um kubbinn í afgreiðslu Keilis og kostar hann kr. 3.000, við skil á honum fást kr. 2.000 endurgreiddar. Skólinn er lokaður um helgar en hægt er að komast inn með aðgangskubbi frá kl. 7:45 – 21:00. Handhafi aðgangskubbs er ábyrgur fyrir umgengni og er óheimilt að taka með sér gesti. Ef nemandi verður valdur að útkalli öryggisþjónustu er hann ábyrgur fyrir kostnaði sem því fylgir. Öryggiskerfi hússins fer í gang alla daga vikunnar kl. 23:00 og þá verður húsið að vera mannlaust, öll umgengni eftir þann tíma ræsir kerfið.
Aðgangskubburinn er einnig prentkubbur og geta nemendur nýtt sér hann til að prenta út í prentaðstöðu skólans.


Umgengni 

Keilir leggur mikla áherslu á góða umgengni og eru nemendur  vinsamlegast beðnir um að taka þátt í því með starfsfólki skólans að halda bæði húsi og lóð snyrtilegu. Henda rusli í tunnur sem eru á göngum og ganga vel um kennslustofur og önnur rými og allan búnað sem honum tilheyrir. Nemendur eru beðnir um að nýta sér grænu tunnurnar í prentherberginu til að losa sig við pappír. Neysla matvæla er ekki leyfð í kennslustofum. Í anddyri skólans eru sjálfsalar með gosi og sælgæti. Öll meðferð áfengis og annarra vímuefna er stranglega bönnuð í skólanum. 


Mötuneyti skólans 

Í Salnum er rekið mötuneyti á vegum Skólamatar, opnunartími mötuneytis er frá kl. 8:00 til 13:00 alla virka daga. Á skolamatur.is má nálgast matseðil vikunnar. Í matsal skólans er hægt að kaupa sér heitan mat, létta rétti og kaffi. Þar er einnig örbylgjuofn og samlokugrill sem nemendur geta nýtt fyrir nesti að heiman. Kaffibolla og önnur áhöld sem farið er með úr matsalnum þarf að skila þangað aftur. Vinsamlegast skiljið kaffibolla ekki eftir á göngum skólans.


Reykingar 

Reykingar eru bannaðar á lóð skólans. Við nemendainngang á hlið skólans er skýli þar sem leyfilegt er að reykja. Reykingar í og við inngang skólans eru stranglega bannaðar. Sígarettustubbum skal hent í þar til gerð „stubbahús“ og eru nemendur ábyrgir fyrir því að losa þau og halda reyksvæði hreinu. Við hlið reykskýlisins er ruslagámur þar sem losa má úr stubbahúsum, áhöld til þrifa má nálgast hjá Húsnæðissviði Keilis.


Húsgögn

Ekki er heimilt að breyta uppröðun borða og stóla eða færa húsgögn eða önnur áhöld á milli kennslustofa án heimildar húsnæðissviðs.


Skápar 

Skápar eru leigðir út til nemenda eina önn í senn, nánari upplýsingar um útleigu eru veittar hjá þjónustufulltrúa í afgreiðslu. 


Bílastæði 

Merkt bílastæði eru í kringum skólann og eru nemendur beðnir um að virða þær merkingar, einnig má nota stæði við íþróttahúsið, Andrews og kirkjuna. Merkt stæði fyrir fatlaða er við aðalinngang skólans. Ekki má leggja uppá grasi í kringum skólann, eigendur bifreiða sem er þannig lagt eða virða ekki aðrar merkingar mega eiga von á að þær verði fjarlægðar á þeirra kostnað og án fyrirvara.

Dagatal

« Febrúar 2012 »
SMÞMFFL
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829 

Á næstunni

empty
empty1

Framsetning efnis

Póstlisti


moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf