Flýtilyklar
Skrifstofa Keilis og nemendaskírteini

Þegar nemendur þurfa þjónustu af einhverju tagi er skrifstofa Keilis fyrsti staðurinn sem þeir leita til. Þar má m.a. fá ýmis
vottorð um skólavist og yfirlit yfir námsferla Á skrifstofunni er einnig hægt að kaupa prentkvóta og þar eru stúdentakort afhent.
Þar er tekið á móti vottorðum og staðfestingu á veikindum. Ýmis önnur þjónusta er veitt á skrifstofunni og geti starfsmenn ekki
afgreitt málið vísa þeir því rétta leið.
Skrifstofan er opin frá klukkan 8:00 til 12:00 og 13:00 til 16:00 alla virka daga.
Nemendaskírteini
Ábendingar og aðstoð
Sími: 578 4000
Fax: 578 4001
Netfang: skrifstofa@keilir.net
Nemendaskírteini
Allir nemendur Keilis geta fengið nemendaskírteini sér að kostnaðarlausu á skrifstofu skólans. Ef skírteinin tapast, þá kostar
endurútgefið kort 2.000kr. Stefnt er að því að skírteinin séu tilbúin við skólasetningu og ættu nemendur að geta
nálgast sín skírteini þá. Notast er við myndir úr Innu, en ef það er ekki mynd á INNU er hægt að láta taka af sér
mynd á skrifstofunni.
Ábendingar og aðstoð
Er eitthvað bilað, vantar þig aðstoð, viltu koma með ábendingu, kvörtun, hrós? Keilir starfar á nokkrum stöðum og því
getur verið erfitt að fylgjast með þegar eitthvað er bilað eða fer úrskeiðis. Jafnframt viljum við leggja okkur fram við að bæta
þjónustuna og aðstöðuna. Við tökum því fagnandi að fá ábendingar frá nemendum um allt milli himins og jarðar.
Sendið póst á Venný Sigurðardóttur á netfangið: hjalp@keilir.net
Á næstunni
18.02.2012





