Flýtilyklar
Ýmsar algengar spurningar og svör við þeim
Hvernig sæki ég um íbúð?
Allar umsóknir þurfa að berast í gegnum netið, tengill á umsóknir eru til hægri á síðunni.
Hluti íbúðanna á Ásbrú eru leigar á frjálsum markaði, um er að ræða 3-5 herbergja fjölskylduíbúðir
í 1100 hverfinu. Aðrar íbúðir eru aðeins leigar til námsmanna. Námsmenn þurfa að vera orðnir 20 ára, undantekning á
þeirri reglu eru háskólanemar sem geta sótt um frá 18 ára aldri.
Fái umsækjandi ekki úthlutað fljótlega eftir að umsókn er send er nauðsynlegt að skrá sig inn á tilvísunarnúmeri
milli 1. og 5. hvers mánaðar til að halda umsókn inni. Eftir að umsækjandi hefur fengið úthlutað er nauðsynlegt að klára ferlið,
þ.e. staðfesta úthlutun og koma svo innan tveggja daga til að skrifa undir leigusamning. Annars er hætta á að viðkomandi missi úthlutun.
Hægt er að óska eftir milliflutning innan svæðis, þá þarf að leggja inn nýja umsókn líkt og gert var í upphafi.
Greiða þarf milliflutningsgjald kr. 10.000. Reynt er að verða við óskum íbúa eins og kostur er.
Leigutaki þarf að senda beiðni frá íbúasíðunni með því að skrá sig inn á aðgangsorði sem fylgdi við
afhendingu íbúðar. Þar er farið inn á "síðan mín" og beiðni send. Ekki er hægt að leggja inn beiðni símleiðis eða
með því að koma á skrifstofu Keilis.
Tengill á íbúavef er í valmyndinni efst á heimasíðu Keilis. Þar þarf að skrá sig inn á aðgangs- og leyniorði
til að komast inn á persónulegt svæði hvers leigutaka. Hægt er að komast beint inn á íbúavefinn hér.
Best er að senda póst með nafni og kennitölu leigutaka á þjónustufulltrúa húsnæðissviðs og þið fáið sent
aðgangsorðið.
Leigutaki þarf að skrá sig inn á íbúasíðuna líkt og gert er þegar beiðni er send og segja upp íbúðinni
þaðan. Þriggja mánaða uppsagnarfrestur gildir í öllum tilfellum og miðast við mánaðarmót. Nýir samningar eru ekki
uppsegjanlegir fyrstu 3 mánuðina og tekur uppsögn því ekki gildi fyrr en að liðnum 6 mánuðum af samningstíma.
Íbúar þurfa ekki að sjá um þrif á sameignum, vikuleg þrif eru greidd með hússjóð.
Í húsum nr. 1232, 1233, 1234 og 1109-1 er gæludýrahald leyft, annars staðar gilda lög um gæludýrahald, þ.e. skriflegt leyfi þarf
frá 2/3 hluta leigutaka í húsinu ásamt heilbrigðisvottorði frá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja. Þessu þarf að skila inn á
skrifstofu Keilis.
Öllum leigutökum ber að skila inn tryggingu að upphæð sem nemur tveimur mánuðum í húsaleigu auki hita, rafmagns og
hússjóðs. Hægt er að kaupa ábyrgðartryggingu hjá bönkum, Keilir getur ekki tekið við upphæðinni á vörslureikning.
Trygging þarf að gilda í 60 daga umfram leigusamning og liggja fyrir við afhendingu íbúðar.
Á næstunni
18.02.2012





