Keilir er alhliða menntafyrirtæki í eigu háskóla, fyrirtækja og almannasamtaka

1. Réttur til stúdentaíbúðar á Stúdentagörðum Keflavíkurflugvallar. Húsnæði geta þeir hlotið sem stunda reglulegt nám við Keili, Háskóla á Íslandi eða

Úthlutunarreglur Stúdentagarða Keflavíkurflugvallar

1. Réttur til stúdentaíbúðar á Stúdentagörðum Keflavíkurflugvallar.
Húsnæði geta þeir hlotið sem stunda reglulegt nám við Keili, Háskóla á Íslandi eða annað lánshæft nám hjá LÍN, sýna eðlilega námsframvindu og lofa að hlýða þeim reglum og fyrirmælum sem gilda fyrir leigjendur. Umsækjendur skulu vera fæddir 1988 eða fyrr. Umsóknir þeirra sem stunda nám við aðra skóla en Keili eða íslenska háskóla eru metnar sérstaklega.

Skrifstofa Keilis sér um úthlutun íbúða á Stúdentagörðum Keflavíkurflugvallar.

2. Leigutími. 
Leigutímabil íbúða er almennt eitt ár frá 15. ágúst ár hvert. Leigutaki og leigusali eru bundnir af samningi út leigutímabilið, leigutakar geta þó sagt honum upp á heimasvæði sínu á http://umsokn.keilir.net með a.m.k. þriggja mánaða fyrirvara. Leigusali getur þó samþykkt skemmri fyrirvara séu sérstakar ástæður fyrir hendi, þó ekki skemmri en einn mánuð frá næstu mánaðarmótum eftir uppsögn. Skriflegar beiðnir þurfa að berast Húsnæðisnefnd Keilis sem tekur afgreiðir slík erindi.

2.1. Einstaklingsíbúðir, par- og fjölskylduíbúðir.
Einstaklingar geta sótt um einstaklingsíbúðir eða tvíbýli, einnig geta einstaklingar sótt um fjölskylduíbúð uppfylli þeir kröfur um námsframvindu. Barnlaus pör geta sótt um íbúð í Ásendahverfi og Víkingshverfi. Pör með eitt barn eða fleiri og einstæðir foreldrar geta sótt um íbúðir í Ásenda- og Hlíðarhverfi. Fólk með börn undir 4 ára eða aðrar sérstakar aðstæður getur sótt um íbúð á jarðhæð. Sé skortur á íbúðum er raðað eftir fjölskyldustærð, barnafjölda og úthlutunarreglum. Séu upplýsingar um barnafjölda ekki réttar, samanborið við upplýsingar frá Hagstofu Íslands, skal viðkomandi skila inn vottorði þar um eða þungunarvottorði í þeim tilfellum sem það á við.

2.2. Umsóknir og biðlistar.
Samþykktar umsóknir fara á viðeigandi biðlista innan forgangshóps sjá §7 í þeirri röð sem þær berast skrifstofu Keilis.

3. Umsóknir.
3.1. Umsóknartímabil. 
Hægt er að sækja um íbúð á Stúdentagörðum Keflavíkurflugvelli alla daga ársins allan sólarhringinn og skal umsóknum raðað upp í þeirri röð sem þær berast innan forgangshópa sjá §7. 

3.2. Skil umsókna.
Umsóknum um íbúð skal skila á rafrænu formi á heimasíðu Keilis www.keilir.net eða http://umsokn.keilir.net. Með því að senda inn umsókn heimilar umsækjandi Keili að sækja nauðsynlegar upplýsingar samkvæmt umsóknareyðublaði til Fasteignamats ríkisins, Hagstofu Íslands og menntastofnana á Íslandi. 

3.3. Svarfrestur.
Öll samskipti umsækjanda og Keilis fara fram með rafrænum hætti við það netfang sem uppgefið er á umsókninni. Hafi umsækjandi athugasemdir við úthlutun Keilis skal hann skila skriflegri athugasemd til umsjónarmanns húsnæðis innan sjö daga frá úthlutuninni.

3.4. Umsóknir sem vísað skal frá.

3.4.1. Ófullnægjandi upplýsingar. Heimilt er að vísa umsókn frá ef hún er talin ófullnægjandi á einhvern hátt eða ef upplýsingar sem fram koma í umsókn reynast rangar. Þá skal umsókn vísað frá ef umsækjandi stundar ekki nám og/eða er fæddur síðar en 1988 sbr. 1. grein.
3.4.2. Rangar upplýsingar. Komi í ljós eftir að leigusamningur er undirritaður, að upplýsingar sem fram koma í umsókn eða fylgiskjölum hennar eru rangar fellur úthlutunin úr gildi og er leigutaka skylt að kröfu Keilis að rýma húsnæðið innan 7 daga frá því að honum berst skrifleg áskorun þar um, hafi hann veitt íbúð viðtöku.
3.4.3. Óskilvísi umsækjanda. Keili er heimilt að vísa umsókn um endurnýjun samnings frá ef umsækjandi skuldar húsaleigu í einn mánuð eða meira vegna vistar sinnar á Stúdentagörðum Keflavíkurflugvallar.
3.4.4. Brot á reglum. Hafi umsækjanda verið vísað af Stúdentagörðum Keflavíkurflugvallar vegna brota á reglum sem Keilir setur fram skal umsókn hans vísað frá. Fari fram ólögmæt starfsemi í íbúðinni af hálfu leigjanda eða einhvers á hans vegum skal heimilt að segja leigusamningi samstundis upp og rýma íbúðina þegar í stað.

4. Staðfesting umsóknar. 
4.1. Umsókn samþykkt.
Þegar umsókn hefur hlotið samþykki Keilis, þarf umsækjandi að staðfesta veru sína á viðkomandi biðlista milli 1-5 hvers mánaðar. Ef umsókn er ekki staðfest innan tilskilins tíma eyðist hún sjálfkrafa og fellur viðkomandi út af biðlista.

4.2. Umsækjandi fær úthlutað húsnæði.
Hafi umsækjandi fengið úthlutað húsnæði skal hann staðfesta samþykki sitt innan tveggja daga frá dagsetningu úthlutunar. Hafi slík staðfesting ekki borist innan tilskilins frests fellur úthlutunin niður. Við undirritun samnings þarf leigjandi að greiða óafturkræft umsýslugjald, kr. 5.000,- sem er innheimt á fyrsta greiðsluseðli hvers leigutímabils (gjald þetta greiðist á hverju ári þ.e. bæði við ný- og endurúthlutun).

5. Leigusamningar.
5.1. Undirritun leigusamnings.
Fái stúdent úthlutað íbúð er honum skylt að undirrita leigusamning sem skrifstofa Keilis lætur honum í té og inniheldur nánari ákvæði um réttindi og skyldur leigutaka á Stúdentagörðum Keflavíkurflugvallar. Lyklar að húsnæði skulu einungis afhentir nýjum leigutökum gegn framvísun undirritaðs leigusamnings. Leigusamningar eru almennt gerðir til eins árs í senn. Samningar sem gerðir eru eftir að leigutímabil er hafið, gilda einungis til loka þess tímabils.

5.2. Endurúthlutun. 
Hafi stúdentar sem búa á Stúdentagörðum Keflavíkurflugvallar fengið endurúthlutun þurfa þeir að undirrita nýjan leigusamning fyrir næsta leiguár á skrifstofu Keilis. Tilkynning um endurnýjun samninga er send með bréfpósti í apríl og gengið frá samningum fyrir næsta samningstíma um 2 vikum síðar. Sé það ekki gert skal litið svo á að samningur verði ekki endurnýjaður og skal viðkomandi þá rýma húsnæðið í síðasta lagi þegar gildandi samningur rennur út. Endurúthlutun er alfarið háð því að umsækjandi (leigjandi) uppfylli í öllu ákvæði úthlutunarreglna. Hafi umsækjandi ekki náð tilskyldum námsárangri fellur endurúthlutunin úr gildi og leigusamningur verður sjálfkrafa ógildur enda undirritaður með fyrirvara um ákvæði úthlutunarreglna.

5.3. Barnlaust sambýlisfólk. 
Sæki barnlaust sambýlisfólk um paríbúð skal litið svo á að þau séu bæði umsækjendur og skulu þau bæði undirrita leigusamning.

5.4. Flutningur innan Stúdentagarða Keflavíkurflugvallar. 
Óski leigjandi/leigjendur eftir flutningi á milli íbúða/herbergja skal viðkomandi senda inn nýja umsókn og verður umsóknin metin og getur skrifstofa Keilis samþykkt flutninginn gegn greiðslu flutningsgjalds, kr. 10.000.- (sjá grein 8). Undanþegið flutningsgjaldi er barnlaust fólk sem á von á barni.

6. Afhending á húsnæði. 
Starfsfólk Keilis skal afhenda leigutaka húsnæði á fyrsta degi leigutímabils. Er heimilt að draga afhendingu í allt að fimm daga án þess að leiga lækki. Tilkynna skal leigutaka væntanlegan drátt á afhendingu svo fljótt sem auðið er. Við afhendingu húsnæðis skal leigutaki framvísa gildum persónuskilríkjum auk þess að leggja fram staðfestingu á skólavist sinni.

6.1. Skil á húsnæði. 
Leigjandi skal ætíð skila húsnæði sínu útteknu og frágengnu ekki síðar en milli kl. 11:00 og 12:00 á skiladegi. Hafa þarf samband við skrifstofu Keilis með góðum fyrirvara til að panta úttekt á íbúð sem skilað er og skal leigutaki eða fulltrúi hans vera viðstaddur úttekt. Húsnæði skal skilað hreinu og tilbúnu til afhendingar næsta leigjanda skv. gátlista, sé það ekki gert mun leigusali láta framkvæma þrif á kostnað leigjanda. Leigutaki fær tækifæri til að bregðast við athugasemdum sem gerðar eru við fyrstu úttekt, sé önnur úttekt ekki fullnægjandi eru framkvæmd þrif á kostnað leigutaka. Komi af einhverju ástæðum til þriðju úttektar greiðir leigutaki kr. 5.000,- Dragi leigjandi skil húsnæðis fram yfir áður ákveðna tímasetningu skal hann greiða 3 daga leigu fyrir hvern dag sem skilin dragast. Skili leigjandi ekki tilskyldum einingafjölda s.k. §9 er uppsagnarfrestur húsnæðis 1 mánuður annars 3 mánuðir.

7. Forgangsröðun. 
Umsóknum um vist á Stúdentagörðum Keflavíkurflugvallar skal raða í forgangsröð samkvæmt neðangreindum reglum Hafi umsækjandi sagt upp fyrri úthlutun sinni fer hann ekki í forgang samkvæmt neðangreindu heldur skal meðhöndla umsóknina sem nýja.

7.1 stúdíóíbúðir og 2 herbergjaíbúðir.
Umsóknir þeirra skal flokka á eftirfarandi hátt:

A. Núverandi íbúar sem uppfylla almenn skilyrði um úthlutun.
B. Námsmenn sem stunda nám við Keili.
C. Námsmenn með lögheimili utan höfuðborgarsvæðisins og námsmenn með lögheimili og búsetu á höfuðborgarsvæðinu eiga jafnan rétt til úthlutunar. 
D. Umsækjendur þar sem annar aðilinn stundar nám. 

7.2 Fjölskylduíbúðir. 
Umsóknir um íbúðir skulu flokkaðar á eftirfarandi hátt: 

A. Núverandi íbúar sem uppfylla almenn skilyrði um úthlutun. 
B. Námsmenn sem stunda nám við Keili. 
C. Sambýlisfólk/einstætt foreldri með tvö börn eða fleiri. 
D. Sambýlisfólk/einstætt foreldri með eitt barn.
E. Barnlaus pör 
F. Einstaklingar. 

7.3 Flutningur milli flokka. 
Keili er heimilt að flytja umsækjendur milli flokka ef sýnt er fram á að viðkomandi búi við slæmar félagslegar aðstæður. Skal skrifleg beiðni um slíkt send á keilir@keilir.net um leið og umsókn er send inn. Gögnum til stuðnings beiðninni skal skilað inn eða send á skrifstofu Keilis. 

7.4 Breyttar aðstæður
Verði sérstakar breytingar á aðstæðum íbúa Stúdentagarða Keflavíkurflugvallar milli úthlutana, t.d. sambúðarslit eða þungun, er starfsmönnum Keilis heimilt að færa viðkomandi yfir í aðra íbúðartegund (einstaklingsíbúð/herbergi, paríbúð, fjölskylduíbúð), samkvæmt úthlutunarreglum. 

7.5 Gæludýr.
Um gæludýr gilda sömu reglur og í almennum fjölbýlishúsum. Gæludýraeigendum ber að fá skriflegt leyfi allra í stigaganginum og ber jafnframt að skrá dýrið hjá Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja. 

8. Biðlistar. 
Þeim umsækjendum sem ekki fá úthlutað skal gefinn kostur á að skrá sig á biðlista. Sá sem er efstur hverju sinni hefur forgang að húsnæði sem losnar. Úrskurðarnefnd er heimilt að víkja frá röðun á biðlista eða setja nýjan umsækjanda á biðlista ef sérstakar félagslegar aðstæður eru fyrir hendi. Umsóknir um flutning milli íbúða á leigutímabilinu raðast á viðkomandi biðlista í þeirri röð sem þær berast og kemur fyrsta flutningsumsókn númer 5 á biðlista og síðan í fimmta hvert sæti eftir það. Í annað skipti sem umsækjendur á biðlista hafna tilboði um íbúð falla þeir út af viðkomandi lista. 

8.1 Gerðir eru eftirfarandi biðlistar. 

Biðlisti fyrir tveggja herbergja íbúðir 
Biðlisti fyrir stúdíóíbúð 
Biðlisti fyrir þriggja herbergja íbúðir 
Biðlistar fyrir þriggja herbergja íbúðir á jarðhæð 
Biðlisti fyrir fjögurra herbergja íbúð 
Biðlisti fyrir fjögurra herbergja íbúð á jarðhæð 
Biðlisti fyrir 5 herbergja íbúð 
Biðlisti fyrir 5 herbergja íbúð á jarðhæð 
Biðlisti fyrir 6 herbergja íbúð 
Biðlisti fyrir 6 herbergja íbúð á jarðhæð 

8.2 Röðun á biðlista. 
Óski umsækjandi ekki eftir að vera á biðlista, eða hann fellur út af biðlista af öðrum ástæðum, færast þeir sem neðar eru upp um eitt sæti á listanum. 

9. Eðlileg námsframvinda. 
Eðlileg námsframvinda telst vera ef umsækjandi hefur lokið á hverju ári frá úthlutun húsnæðis að a.m.k. 20 einingum eða 2/3 hlutum þess náms sem viðkomandi deild eða skor telur vera eins árs nám, þar af a.m.k. 6 einingum á haustönn. Vegna endurúthlutunar húsnæðis geta íbúar fengið bráðabirgðaúthlutun fram til áramóta þurfi viðkomandi að taka haustpróf. 

9.1 Undanþágur frá kröfu um námsframvindu. 
Undanþágu hverskonar er einungis hægt að veita einu sinni hvort heldur um er að ræða veikindi, námsframvindu, fjöldatakmörkunum eða annað. 

9.1.1 Fjöldatakmarkanir. Umsækjandi sem lendir í beinum fjöldatakmörkunum telst hafa sýnt eðlilega námsframvindu ef hann fullnægir skilyrðum §9. greinar hér að framan. Undanþágu vegna fjöldatakmarkana má þó aðeins veita einu sinni. 

9.2 Aftur á sama námsári. 
Ef umsækjandi er í deild þar sem dregin eru skörp skil á milli ára en fer aftur á sama námsár er heimilt að líta svo á að námsframvinda hans sé eðlileg ef hann hefur að jafnaði lokið 2/3 af fullu námi það sem af er náminu. Þessa undanþágu má þó aðeins veita hverjum umsækjanda einu sinni. 

10. Hámarksdvöl. 
Hámarksdvöl á Stúdentagörðum Keflavíkurflugvallar skal vera jafnlöng eðlilegum námstíma að frádregnum þeim námseiningum sem lokið er þegar umsækjandi fær úthlutað húsnæði, þó ekki lengur en sex ár. Endurskráning í nám lengir ekki hámarksdvöl m.v. fyrra nám. Stúdentagarðar Keflavíkurflugvallar geta veitt undanþágu vegna veikinda. 

11. Trúnaður. 
Farið skal með umsóknir og upplýsingar sem þeim fylgja sem trúnaðarmál og hvílir þagnarskylda á starfsmönnum Keilis. 

12. Endurskoðun úthlutunarreglna.
Keilir áskilur sér rétt til þess að breyta úthlutunarreglum.

Úthlutunarreglur Stúdentagarða Keflavíkurflugvallar
10. apríl 2008

Framsetning efnis

Póstlisti


moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf