Flýtilyklar
Húsreglur - Stúdentagarðarnir á Ásbrú
1. gr. Umgengni
Íbúum Stúdentagarðanna á Ásbrú er skylt að ganga snyrtilega um íbúðir, sameignir og lóðir og gæta þess
að raska ekki eðlilegum afnotum, starfsró eða svefnfriði annarra íbúa hússins eða valda þeim óþægindum eða
ónæði. Eftir kl. 23:00 til kl. 07:00 má enga háreysti hafa sem raskað getur svefnfrið annarra íbúa. Leigutaki skal bæta tjón á
húsnæðinu eða fylgifé þess, sem verður af völdum hans sjálfs, gæludýra, heimilismanna eða annarra manna sem hann hefur leyft afnot
af húsnæðinu eða umgang um það. Um sameiginleg rými íbúa gilda sérstakar reglur.
2. gr. Umhirða sameignar og lóðar
Leigutaka og íbúum er skylt að annast ræstingu og sameiginlega umhirðu sameignar hússins á móti öðrum leigutökum í
húsinu. Þar er átt við allsherjarhreingerningu á hús og lóð þess a.m.k. einu sinni á ári skv. tilmælum
húsnæðissviðs Keilis. Séu þessar skyldur vanræktar hefur leigusali, samkv. leigusamningi, heimild til að láta framkvæma verkið á
kostnað íbúa. Hverri íbúð fylgir sérmerkt bílastæði og ber íbúum að virða slíkar merkingar. Stranglega er
bannað að leggja í ómerkt stæði fyrir framan inngang og stæði merkt RC. Ganga skal snyrtilega um lóð og sameiginleg rými utandyra, s.s.
leikvöll og grillsvæði, og ganga vel frá að lokinni notkun. Leigutökum ber að ganga snyrtilega um stigaganga og ekki er heimilt að geyma þar hluti er
tilheyra íbúum.
3. gr. Gestir
Gestir eru alfarið á ábyrgð viðkomandi leigutaka og ber að fylgja að öllu leyti settum húsreglum.
4. gr. Dýrahald
Gæludýr eru leyfð í tilgreindum stigagöngum. Í öðrum húsum ber að leita skriflegs samþykkis annarra íbúa
hússins fyrir gæludýrum og leggja slíkt leyfi fram á skrifstofu Keilis ásamt skráningarpappírum frá Heilbrigðiseftirliti
Suðurnesja. Eigendum gæludýranna ber að hreinsa upp eftir dýrin á lóð. Sé það ekki gert getur leigusali látið framkvæma
verkið á kostnað allra íbúa hússins.
5. gr. Sameiginleg rými
Reykingar eru með öllu óheimilar í einstaklingsíbúðum í 700 húsum og öllum sameiginlegum rýmum íbúa. Í
sameiginlegum frístundarýmum skal vera næði frá kl. 23:00 – 07:00. Dagsstofur á 3. hæð í 700 byggingum eru ætlaðar sem
lesaðstaða fyrir nemendur.
6. gr. Sorp
Sorpgámar eru staðsettir við hvert hús og skal allt rusl vera í lokuðum plastpokum. Gámurinn er ekki ætlaður til losunar á öðru
en heimilissorpi og stranglega bannað er að skilja húsgögn, raftæki eða slíka hluti eftir í sorpskýlum, íbúum er bent á
Kölku við Berghólabraut fyrir slíkt.
7. gr. Viðhald og skemmdir
Íbúar geta snúið sér til Neyðarþjónustu ÍAV þegar t.d. lekur vatn í íbúðum, rafmagn fer af byggingum
eða hvað annað sem mögulega getur komið upp sem talið er að geti valdið skemmdum á mannvirki eða innbúi. Neyðarþjónustan metur
beiðnina og hvort bregðast þurfi strax við eða hvort verkið megi bíða. Um leið og leitað er til Neyðarþjónustunnar þarf
íbúi jafnframt að leggja inn beiðni á íbúavef. Vegna viðhaldsverka sem þola bið og eru á ábyrgð leigusala skal senda inn
beiðni í gegnum íbúavef. Ekki er tekið við slíkum beiðnum í gegnum síma. Önnur minni háttar viðvik sem eru ekki á
ábyrgð leigusala skulu greidd af leigutaka kjósi hann að leita til þjónustuaðila í stað þess að sjá um verkið sjálfur.
Ekki er heimilt að bora eða negla í veggi. Leigusali hefur rétt á að krefja leigutaka um bætur sé það ekki virt. Í
íbúðunum eru þar til gerðar brautir eða listar sem nota má til að hengja upp myndir og annað slíkt.
8. gr. Húsfélög
Hverjum stigagangi ber að mynda með sér húsfélag er heldur reglulega húsfundi, a.m.k. tvisvar á ári, og eru allir leigutakar félagar
í því. Húsfélögum er heimilt að bæta við gildandi húsreglur frá Keili í samráði við íbúa og
húsnæðissvið Keilis.





