Keilir er alhliða menntafyrirtæki í eigu háskóla, fyrirtækja og almannasamtaka

Leigutökum er skylt að taka þátt í hagsmunafélagi leigjenda stúdentagarðanna og stofna þau formlega. Húsfélagið kemur fram gagnvart leigusala varðandi

Stofnun húsfélaga - hagsmunafélags leigjenda

Leigutökum er skylt að taka þátt í hagsmunafélagi leigjenda stúdentagarðanna og stofna þau formlega. Húsfélagið kemur fram gagnvart leigusala varðandi almenn hagsmunamál leigjenda hússins. Skal félagið m.a. setja í samráði við leigusala húsreglur, sem öllum íbúum hússins er skylt að fara eftir. Þegar hús skiptist í nokkur stigahús er litið svo á að um eitt húsfélag sé að ræða. Húsfélagið tekur því til allra stigahúsanna, hins vegar getur hvert stigahús stofnað sérstaka húsfélagsdeild innan stigahússins.

Húsfélagsdeildir
Þegar húsfélag skiptist í einingar, til dæmis stigahús, ráða viðkomandi leigutakar einir sameiginlegum innri málefnum. Húsfélagsdeildin getur hvort heldur verið sjálfstæð eða starfað innan heildarhúsfélagsins. Til skýringar má benda á að þegar um er að ræða þrjá stigaganga í einu húsi mynda stigagangarnir þrír húsfélagið. Hver stigagangur er síðan húsfélagsdeild innan húsfélagsins. Þar geta leigutakar tekið ákvarðanir um málefni sem eingöngu varða stigaganginn.

Hlutverk
Hlutverk og tilgangur húsfélaga er aðallega að um að setja húsreglur og sjá til þess að íbúar framfylgi þeim, gangi vel um hús og sameign sem því tilheyrir, þ.m.t. lóð, vera tengiliður hússins við leigusala og fulltrúa hans og sjá til þess að hagnýting hússins, bæði séreigna og sameignar, sé ávallt með eðlilegum hætti og þannig að verðgildi eigna haldist. Í húsfélaginu skal öllum sameiginlegum málefnum ráðið til lykta. Húsfélaginu ber jafnframt að halda utan um reglubundna hreinsun á lóð og í sameign og snjómokstur á bílastæðum.

Félagsmenn og félagsgjald
Allir leigutakar eru félagsmenn í húsfélagi viðkomandi fjöleignarhúss. Ekkert félagsgjald er innheimt að hálfu leigusala eða húseiganda.

Stjórn húsfélaga
Stjórnin skal kosin á aðalfundi með einföldum meirihluta. Stjórnin er skipuð a.m.k. þremur mönnum og er einn þeirra formaður sem kosinn skal sérstaklega. Ef ástæða er til er hægt að kjósa jafnmarga varamenn. Stjórnin skiptir með sér verkum eftir því sem þurfa þykir.

Kjörgengir til stjórnar
Kjörgengir til stjórnar eru félagsmenn (þ.e. leigutakar), makar þeirra eða. Það skilyrði er gert að stjórnarmenn séu lögráða.

Kjörtímabil stjórnar
Kjörtímabil stjórnar er eitt ár og miðast tímabil við gildistíma leigusamnings, eða á milli aðalfunda og lýkur því í lok aðalfundar á því ári sem kjörtímabilið rennur út. Flytji formaður eða stjórnarmaður úr húsinu innan kjörtímabils ber viðkomandi að boða til húsfundar og skal þá kosið í stað þess sem flytur á brott.

Upplýsingaskylda stjórnar
Stjórn og framkvæmdastjóra er skylt að veita leigusala upplýsingar um formann eða tengilið húsfélags um leið og hann er valinn.

Aðalfundur
Aðalfundur húsfélags skal haldinn ár hvert fyrir lok aprílmánaðar. Til aðalfundar skal stjórnin boða skriflega og með sannanlegum hætti með minnst 8 og mest 20 daga fyrirvara. Í fundarboði skal greina fundartíma, fundarstað og dagskrá. Þá skal geta þeirra mála sem ræða á og meginefni þeirra tillagna sem leggja á fyrir fundinn. Vilji leigutaki fá mál tekið fyrir og til atkvæðagreiðslu á aðalfundi skal hann greina stjórn frá því skriflega með þeim fyrirvara að unnt sé að geta þeirra í fundarboði.

Almennir fundir
Til annarra almennra funda skal boða þegar stjórnin telur nauðsynlegt og boða tryggilega með minnst 4 og mest 20 daga fyrirvara. Í fundarboði skal greina tíma og stað fundarins og þau mál sem verða tekin fyrir og meginefni tillagna.

Fundarstjórn
Húsfundi er stjórnað af formanni húsfélagsins. Ef hann er ekki viðstaddur velur fundurinn sjálfur fundarstjóra úr hópi félagsmanna.

Fundargerð
Undir umsjá og á ábyrgð fundarstjóra skal rita í sérstaka fundargerðabók meginatriði allra mála sem tekin eru fyrir og allar ákvarðanir sem teknar eru og hvernig atkvæði hafa fallið ef því er að skipta. Í lok fundar skal fundargerðin lesin upp, hún leiðrétt og athugasemdir skráðar. Síðan á fundarstjóri og a.m.k. einn annar félagsmaður sem fundurinn hefur tilnefnt að undirrita fundargerðina. Fundargerðin er heimild um fundinn og sönnun þess sem þar fór fram.

Framsetning efnis

Póstlisti


moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf