Flýtilyklar
4 herbergja íbúðir
| Íbúðir í Hlíðarhverfi |
Hús nr. 926 - 931 | |
|
Fjögurra herbergja íbúðirnar í Hlíðarhverfi eru 135m² að flatarmáli og eru samsettar af þremur svefnherbergjum, stórri stofu
og borðstofu. Rúmgott eldhús er í íbúðinni með eldavél, bakaraofni, uppþvottavél og ísskáp. Þvottahús
með þvottavél og þurrkara. Tvö baðherbergi eru í íbúðinni, þar af er annað inn af hjónaherbergi. Geymsla er inni í
íbúðinni. Í sameign er stór setustofa, geymsla og hjólageymsla á jarðhæð. Skemmtileg leiksvæði fyrir börn og
grillaðstaða eru í næsta nágrenni. Þvottavél, þurrkari og uppþvottavél verða ekki í íbúðunum eftir 1. október 2010.
Verð eru birt með fyrirvara um villur
|
|
| Íbúðir í Hlíðarhverfi |
Hús nr. 1101 - 1114 | |
| Í húsum nr. 1101 til 1114 í Skógarhlíð eru 36 fjögurra herbergja íbúðir sem eru 135m² að
flatarmáli. Þrjú rúmgóð svefnherbergi eru í hverri íbúð og tvö baðherbergi og er annað með baðkari. Rúmgott
þvottahús og eldhús með eldavél, bakaraofni og ísskáp, önnur heimilistæki fylgja ekki. Geymsla á jarðhæð fylgir hverri
íbúð á samt rúmgóðri sameiginlegri hjólageymslu. Útgengt er á lóð úr sameign bakatil í húsinu og
skemmtileg leiksvæði fyrir börn í næsta nágrenni. Leiguverð í ágúst miðað við vísitölu: kr. 74.417,- Hússjóður: kr. 2.500,- Hiti og rafmagn: kr. 8.870,- Verð eru birt með fyrirvara um villur
|
![]() Við Skógarhlíð 1101 - 1114 eru 36 fjögurra herbergja íbúðir Stærð: 135m² Fjöldi svefnherbergja: 3 Aðstaða: Eldhús | Lesaðstaða | Geymsla | Salerni | Svalir |
| Íbúðir í Ásendahverfi |
Hús nr. 1216 til 1234 | |
|
Í Ásendahverfi eru alls 127 fjögurra herbergja íbúðir, allar um 145m² að flatarmáli. Þrjú svefnherbergi, stór stofa og borðstofa. Rúmgott eldhús með eldavél, bakaraofni, uppþvottavél og ísskáp. Þvottahús með þvottavél og þurrkara. Tvö baðherbergi eru í íbúðinni, og er annað inn af hjónaherbergi. Geymsla er inni í íbúðinni. Í sameign er stór setustofa, geymsla og hjólageymsla á jarðhæð. Skemmtileg leiksvæði fyrir börn og grillaðstaða eru í næsta nágrenni. Þvottavél, þurrkari og uppþvottavél verða ekki í íbúðunum eftir 1. október 2010. Verð eru birt með fyrirvara um villur
|
|










