Keilir er alhliða menntafyrirtæki í eigu háskóla, fyrirtækja og almannasamtaka

Lægsta leiguverð á námsmannaíbúðum er á Ásbrú og eiga allir námsmenn í lánshæfu námi rétt til úthlutunar, ekki er nauðsynlegt að báðir sambúðaraðilar séu í námi. Innifalið í leiguverði er nettenging og strætisvagnar milli svæðisins og háskóla á höfuðborga

Nemendaíbúðir

Á Ásbrú hefur nú myndast öflugt samfélag námsmanna og fjölskyldna þeirra sem hafa komið sér fyrir í íbúðum á fyrrum varnarsvæði Bandaríkjahers og er íbúafjöldi í dag um 1800 manns. Ásbrú er hluti af Reykjanesbæ sem er eitt af fimm stærstu sveitarfélögum landsins með ríflega 14.000 íbúa. Uppbygging og umgjörð svæðisins miðar að því að gera Ásbrú að fjölskylduvænu svæði sem gott er að búa á meðan á námi stendur. 

Lægsta leiguverð á námsmannaíbúðum er á Ásbrú og eiga allir námsmenn í lánshæfu námi rétt til úthlutunar, ekki er nauðsynlegt að báðir sambúðaraðilar séu í námi. Innifalið í leiguverði er nettenging og strætisvagnar milli svæðisins og háskóla á höfuðborgarsvæðinu. Upplýsingar um ferðir má sjá á vef SBK. Við leigu bætist hiti og rafmagn og hússjóður sem greiðir fyrir vikuleg þrif á sameignum. 



Ásbrú býður uppá sérlega skemmtilegt hverfi sem hentar bæði einstaklingum sem fjölskyldufólki. Góð aðstaða er til útivistar, leiktæki fyrir börnin, opin grillsvæði og stutt í alla helstu þjónustu í Reykjanesbæ þar sem hægt er að nálgast góðar verslanir, þjónustu, íþróttir og tómstundir fyrir börn og fullorðna.

Á Ásbrú er einnig Langbest, glæsilegur fjölskylduvænn veitingastaður og kaffihús. Íþróttahús og líkamsræktaraðstaða opnuðu í desember 2007 og geta íbúar á Ásbrú nýtt sér þá aðstöðu gegn vægu gjaldi. Samkaup Strax rekur matvöruverslun á svæðinu þar sem hægt er að fá allar helstu nauðsynjar. Í mars 2009 opnaði svo hársnyrtistofan Fimir fingur í sama húsnæði og Langbest og Samkaup, að Keilisbraut 771. Tvöföld Reykjanesbraut gerir allar samgöngur við höfuðborgarsvæðið auðveldar og aðeins er um 20 mín. akstur frá Ásbrú í Hafnarfjörð.


Framsetning efnis

Póstlisti


moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf