Keilir er alhliða menntafyrirtæki í eigu háskóla, fyrirtækja og almannasamtaka

Fjarnám Keilis er skipulagt þannig að nemendur geta stundað nám sitt óháð stað og stund. Í raun er um blandað nám að ræða þar sem staðlotum er fléttað

Fjarnám í boði á vorönn 2010

Fjarnám Keilis er skipulagt þannig að nemendur geta stundað nám sitt óháð stað og stund. Í raun er um blandað nám að ræða þar sem staðlotum er fléttað inn í námið. Fögin eru kennd eitt í einu svo nemendur þurfa ekki að einbeita sér að mörgum námsgreinum á sama tíma.
Atvinnuflugmannsnám
Einkaflugmannsnám
Flugrekstrarfræði
Háskólabrú (nánari upplýsingar um fjarnám á Háskólabrú má finnahér)
Háskólabrú Austurlands
ÍAK íþróttaþjálfari


Staðlotur og samskipti við kennara

Í upphafi hverrar námsgreinar mæta nemendur ístaðlotu/vinnuhelgi sem stendur yfirleitt yfir frá föstudegi til laugardags, eftir það eru nemendur í sambandi við kennara og samnemendur í gegnum kennslukerfi sem skólinn notar. Kennarar eru með fastan viðtalstíma tvisvar í viku þar sem nemendur geta nálgast þá í gegnum kennslukerfið eða önnur samskiptatól svo sem MSN.

Nemendur sem eru búsettir erlendis og geta ekki mætt í staðlotur fá aukaverkefni til að vinna upp lotuna.

Þegar nemendur mæta í staðlotur stendur þeim til boða að leigja sér gistingu á Campus hóteli sem er staðsett á Ásbrú, hægt er að smella hér til að nálgast nánari upplýsingar um þá gistingu sem í boði er.


Kennsluefni og verkefnaskil

Allir fyrirlestrar eru teknir upp og settir inn á kennslukerfið þar sem nemendur hafa aðgang að þeim og geta horft á þá hvenær sem er og eins oft og þeir vilja. Öllum verkefnum er skilað í gegnum kennslukerfið og einkunnir fyrir þau birt þar.


Próf

Öll próf í fjarnámi eru tekin í viðurkenndum skólastofnunum, símenntunarstöðvum eða hjá Keili.


Búnaður

Nemendur þurfa að mæta með fartölvur í staðlotur og vera með Office 2007 pakkann uppsettan á tölvum sínum. Þeir sem nota Apple tölvur þurfa að vera með Mac office 2008 uppsett á vélunum hjá sér. Vert er að benda á að upplýsingatækni er kennd á office 2007, því geta þeir sem eru með Mac office 2008 þurft að leggja meira á sig en þeir sem eru með pc til þess að fylgja eftir námsefninu.

Framsetning efnis

Póstlisti


moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf