Flýtilyklar
Keilir, miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs
Keilir er alhliða menntafyrirtæki í eigu háskóla, fyrirtækja og almannasamtaka. Keilir byggist upp á fjórum mismunandi skólum: Háskólabrú, sem er undirbúningsnám fyrir háskólanám; Heilsu- og uppeldisskóli, Orku- og tækniskóli og Flugakademían. Nánari upplýsingar um námsframboð er hægt að nálgast undir hverjum skóla eða með því að smella á námsframboð.
Flugakademía Keilis heiðraði minningu Alfreðs Elíassonar, frumkvöðuls og einn stofnenda Loftleiða, á Reykjavíkurflugvelli þann 16. mars. Við tækifærið var flaggskip flugflota Keilis nefnt eftir honum. Það var Kristjana Milla Thorsteinsson, ekkja Alfreðs, sem afhjúpaði nafnið. Meðal viðstaddra voru samgönguráðherra, gamlir Loftleiðamenn, fjölskylda Alfreðs og helstu forystumenn íslenskra flugmála. [Lesa meira ...]














