Íbúðir

Á Ásbrú hefur á skömmum tíma myndast öflugt sam- félag námsmanna og fjölskyldna þeirra. Hverfið er hluti af Reykjanesbæ sem er eitt af fimm stærstu

Íbúðir á Ásbrú

Á Ásbrú hefur á skömmum tíma myndast öflugt sam- félag námsmanna og fjölskyldna þeirra. Hverfið er hluti af Reykjanesbæ sem er eitt af fimm stærstu sveitarfélögum landsins með ríflega 14000 íbúa. Uppbygging og umgjörð svæðisins miðar að því að gera Ásbrú að fjölskylduvænu svæði sem gott er að búa á meðan á námi stendur. Í dag búa og starfa yfir 2000 manns á Ásbrú, sem er jafnframt stærsta námsmannasamfélag á landinu. 

Þjónusta og aðstaða á Ásbrú

Uppbygging og umgjörð svæðisins miðar að því að gera Ásbrú að fjölskylduvænu svæði sem gott er að búa á meðan á námi stendur. Skemmtileg svæði til útivistar og öll helsta þjónusta er í seilingarfjarlægð. Íbúðirnar eru stórar og bjartar og leiguverð er mjög hagstætt. Allir námsmenn í lánshæfu námi eiga rétt til úthlutunar. Góð aðstaða er til útivistar, leiktæki fyrir börnin, opin grillsvæði og stutt í alla helstu þjónustu í Reykjanesbæ þar sem hægt er að nálgast góðar verslanir, þjónustu, íþróttir og tómstundir fyrir börn og fullorðna.

Útleiga er bæði fyrir námsmenn og almenna leigutaka, úthlutanir til almennra leigutaka takmarkast við hús við Skógarbraut sem tilheyra 1100 hverfinu.
 
Umsóknir almennra leigutaka fara í gegnum sama umsóknarvef og umsækjandi þarf að taka þar fram að um almenna leigu sé að ræða

Samgöngur

Góð tenging er við önnur hverfi Reykjanesbæjar með ókeypis strætó sem gengur samkvæmt áætlun um öll hverfi bæjarins. Einungis 40 mínútur tekur að fara með almenningssamgöngum til Reykjavíkur, og eru farnar sjö ferðir á virkum dögum frá Ásbrú, nemendum á Ásbrú að kostnaðarlausu.