ÍAK hópþjálfun

Stefnt er að því að bjóða uppá nám í ÍAK hópþjálfun haustið 2012 „Ert þú hópþjálfari eða langar þig til þess að þjálfa í heilsuræktarstöð hópa í

ÍAK hópþjálfun

Stefnt er að því að bjóða uppá nám í ÍAK hópþjálfun haustið 2012

„Ert þú hópþjálfari eða langar þig til þess að þjálfa í heilsuræktarstöð hópa í hinum ýmsum hóptímum“ Ef svarið fyrir annarri hvorri spurningunni er Já, þá er ÍAK hópþjálfarinn eitthvað fyrir þig.

Vegna mikillar eftirspurnar m.a. frá forsvarsmönnum heilsuræktarstöðva um nám til fyrir þá sem sjá um slíka þjálfun eða langar að sjá um slíka þjálfun höfum við ákveðið að bjóða uppá nám í ÍAK hópþjálfun þar sem markmiðið er að búa til framúrskarandi hópþjálfara sem hafa yfirgripsmikla þekkingu á þeim grundvallarþáttum sem snerta starf hópþjálfarans sem og hæfni til að leggja mat á og tileinka sér nýjungar í hópatímum. Rík áhersla verður lögð á að efla nemendur sem leiðtoga og sem mikilvægan söluaðila heilsuræktarstöðva.

Námið er skipulagt í samstarfi við forsvarsmenn heilsuræktarstöðva og fer hluti kennslunnar fram inná stórum stöðvum á höfuðborgarsvæðinu. Að námi loknu geta nemendur bætt við sig námi í ÍAK einkaþjálfun og fengið um helming námsins metinn. Að sama skapi fá ÍAK einkaþjálfarar um helming námsins í ÍAK hópþjálfun metinn.

Námsskrá ÍAK hópþjálfarans er í vinnslu en er langt komin á veg.

Áhersluþættir í náminu:

  • Mikil áhersla er á verklega kennslu samhliða þeirri bóklegu þar sem starf hópþjálfarans er fyrst og fremst verklegt starf.
  • Mikil áhersla er lögð á að nemendur geti skipulagt hóptíma út frá þjálffræðilegu viðmiði, þ.e. álag, tegundir og tímasetningar á m.a. upphitun, þolþjálfun, styrktarþjálfun, fitubrennslu, liðleikaþjálfun og slökun, eftir því sem við á í hverjum tíma.
  • Nemendur læra að kenna grundvallar hóptíma eins og þolfimi, spinning, styrktarþjálfun og palla og nýta fjölda mörg æfingatæki í hópþjálfun eins og æfingabolta, teygjur, lóð, medicine bolta, TRX, ketilbjöllur og frauðrúllur.
  • Ítarlega verður farið í einkenni sértækra hópa í þjálfun eins og barnshafandi kvenna, nýbakaðra mæðra, offeitra, unglinga, aldraðra og sjúklinga.
  • Nemendum verður kennt að telja út tónlistartakt og nýta tónlist í hóptímum. Farið verður sérstaklega í val á tónlist miðað við þjálfunaráherslur og markhópa.
  • Mikil áhersla verður lögð á að nemendur læri aðferðir í þjálfun til þess að lágmarka meiðslahættu, eins og rétta líkamsbeitingu í æfingum og álagsstjórnun.
  • Þar sem hópþjálfarar halda gjarnan utan um lokuð námskeið  sem m.a. felur í sér að yfirfara matardagbækur og veita ráðleggingar um næringarval verður djúpt farið í næringarfræði. Af sömu ástæðu læra nemendur að fitu- ummáls- og frammistöðumæla. 
  • Í ÍAK hópþjálfaranáminu er kennd sálfræði með áherslu á æfingasálfræði sem snertir starf hópþjálfara að stórum hluta. Farið er í markmiðssetningu, samskiptatækni, hvatningu og fleira því tengt.

Skipulag námsins

Námið er kennt á tveimur önnum, haustönn og vorönn. Áætlað að byrja haustið 2012.

Námið er skipulagt sem fjarnám með staðbundnum vinnuhelgum hjá Keili á Ásbrú einu sinni í mánuði frá föstudegi til sunnudags. Hluti námsins verður kenndur á heilsuræktarstöðvum á Höfuðborgarsvæðinu.

100% skyldumæting er á vinnuhelgar. 

Vinnuálag

Námið er skipulagt sem fullt 60 fein eininga nám.

Tveir fyrirlestrar (4*40mín) eru í viku í fjarkennslu og nemendur skulu leysa stutt verkefni úr hverjum fyrirlestri. Nemendur hafa 3 sólarhringa til að heyra á fyrirlesturinn og vinna verkefnið og eru því ekki háðir ákveðnum stað og tíma heldur geta þeir stundað námið á þeim tíma sem þeim hentar best. Í gegnum fjarfundakerfið geta nemendur sent kennara og samnemendum spurningar um efni fyrirlestursins. Reynt er að dreifa vinnuálaginu með því að hafa lokapróf áfanga um leið og áföngum er lokið.

Staðbundar vinnulotur eru eina helgi í mánuði frá föstudegi til sunnudags. Kennsla er frá kl. 12-19 á föstudögum, kl. 9-16 á laugardögum og kl. 9-16 á sunnudögum. Á staðbundnum lotum er fyrst og fremst lagt áherslu á verklega kennslu í þjálfun sem og hagnýt verkefni í bóklegum áföngum.

Á seinni önn eiga nemendur að kenna hóptíma samkvæmt skipulagi sem kynnt verður síðar. Nemendur vinna einnig lokaverkefni á seinni önn.

Námið er krefjandi og gerðar eru miklar kröfur til nemenda um ástundun og kunnáttu. Nemendur þurfa að ná að lágmarki 7,0 í verkefnaeinkunn til að öðlast próftökurétt og að lágmarki 7,0 í prófi til að standast próf.

Námsgjöld

Við inngöngu í námið er gefinn út reikningur fyrir staðfestingargjaldi kr. 45.000. Áður en námið hefst er síðan sendur út reikningur fyrir fyrri önninni, kr. 300.000. Þá er sendur úr reikningur fyrir seinni önninni í lok fyrri annar, kr. 240.000.

Nemendur sem lokið hafa 60 fein einingum í ÍAK einkaþjálfun greiða helming námsgjaldsins.

Innifalið í námsgjöldum er, auk kennsluaðstöðunnar og kennslunnar, frítt kort í líkamsrækt á meðan á námi stendur í Sporthúsinu, World Class og íþróttahúsinu á Ásbrú. 

SÆKJA UM NÁM