Heilsuskóli Keilis - ÍAK einkaþjálfun og íþróttaþjálfun

Umsókn um nám í ÍAK Einkaþjálfun Tekinn verður inn nýr hópur ÍAK einkaþjálfaranema haust 2011. Hægt er að velja um að sækja staðlotur í Reykjanesbæ eða á

Umsóknir um nám

Umsókn um nám í ÍAK Einkaþjálfun

Tekinn verður inn nýr hópur ÍAK einkaþjálfaranema haust 2011. Hægt er að velja um að sækja staðlotur í Reykjanesbæ eða á Akureyri.

Gerð er krafa um að umsækjendur hafi haldgóða reynslu af íþróttum og líkamsrækt og séu í góðu líkamlegu formi.

Þeir sem hafa lokið öðru einkaþjálfaraprófi, háskólaprófi eða stúdentsprófi njóta forgangs í námið. Gerð er lágmarkskrafa um 18 ára aldur og 70 einingar í framhaldsskóla. Þar af skulu hið minnsta 9 vera í ensku, 6 í íþróttum, 6 í stærðfræði, 3 í eðlisfræði og 3 í upplýsingatækni. Í persónulegu bréfi sem óskað er eftir í umsókninni skal umsækjandi m.a. segja frá sjálfum sér, telja fram íþróttareynslu, segja frá hvers vegna sótt sé um námið og hvert markmiðið sé með því að sækja þetta nám.

Allir umsækjendur sem uppfylla inntökuskilyrði verða kallaðir í viðtal. Umsóknafrestur er til 6. júní. Seinni umsóknarfrestur er til 20. júní.


SÆKJA UM

Framsetning efnis

Póstlisti


moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf