Heilsuskóli Keilis - ÍAK einkaþjálfun og íþróttaþjálfun

Heilsuskóli Keilis er einn fjögurra skóla Keilis, miðstöðvar vísinda, fræða og atvinnulífs. Í skólanum er boðið upp á fjölbreytt nám á sviði heilsu og

Um Heilsuskólann



Heilsuskóli Keilis er einn fjögurra skóla Keilis, miðstöðvar vísinda, fræða og atvinnulífs. Í skólanum er boðið upp á fjölbreytt nám á sviði heilsu og íþrótta.

Heilsuskóli Keilis býður upp á tvær námslínur í þjálfun, ÍAK einkaþálfun og ÍAK íþróttaþjálfun og nú er í mótun ÍAK hópþjálfun sem er fyrir þá sem vilja stjórna hópatímum eins og palla- og þolfimi, spinnig, styrktarþjálfun og þess háttar. Þar að auki býður heilsuskólinn upp á mikið úrval stakra símenntunarnámskeiða undir leiðsögn sérfræðinga.

ÍAK einkaþjálfaranámið er 2ja anna langt nám. Námið er viðurkennt af Menntamálaráðuneytinu, veitir 36 einingar og er lánshæft hjá LÍN skv. reglum sjóðsins. Markmiðið með náminu er að skapa framúrskarandi einkaþjálfara sem hafa yfirgripsmikla þekkingu á heilbrigði einstaklingsins og hæfni til að búa til einstaklingsmiðaðar þjálfunaráætlanir á sviði styrktar- og þolþjálfunar. 

ÍAK íþróttaþjálfun er einstakt námskeið á heimsmælikvarða fyrir fagfólk í þjálfun. Námskeiðið er mjög hagnýtt og hnitmiðað og ætlað metnaðarfullum þjálfurum sem vilja sérhæfa sig í að styrktar- og ástandsþjálfa íþróttamenn á afreksstigi.

Keilir kappkostar við að bjóða uppá fjölbreytt stök námskeið fyrir þá sem veita ráðleggingar á sviði þjálfunar og næringar. Námskeiðin eru ýmist kennd af kennurum við ÍAK eða öðrum erlendum sem og íslenskum sérfræðingum.

Forstöðumaður Heilsuskóla Keilis



Heilsu- og uppeldisskóli Keilis
Grænásbraut 910
Ásbrú 
235 Reykjanesbær

Framsetning efnis

Póstlisti


moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf