Heilsuskóli Keilis - ÍAK einkaþjálfun og íþróttaþjálfun

Michel Boyle Michael Boyle er einn fremsti sérfræðingurinn á sviði styrktar- og ástandsþjálfunar, frammistöðuþjálfunar og almennrar þjálfunar. Þekktastur

Dagur 2, 24. september

Michel Boyle

Michael Boyle er einn fremsti sérfræðingurinn á sviði styrktar- og ástandsþjálfunar, frammistöðuþjálfunar og almennrar þjálfunar. Þekktastur er hann fyrir þjálfun á íþróttamönnum og hann hefur annast styrktarþjálfun afreksmanna úr flestum íþróttagreinum.

Fyrirtæki Mike, styrktar- og ástandsþjálfun Michael Boyle, hefur eitt megin markmið: að veita íþróttamönnum á öllum stigum frammistöðuþjálfun. Allt frá ungum og efnilegum íþróttamönnum í heimsklassa afreksfólk óháð íþróttagrein.

Mike starfaði í 15 ár sem yfir styrktarþjálfari í Boston University og enn þann daginn í dag kemur Mike að starfinu en sér alfarið um íshokkílið skólans.

Mike hefur haldið óteljandi fyrirlestra um öll Bandaríkin á sviði styrktar- og ástandsþjálfunar og íþróttaþjálfunar. Hann hefur gefið út 9 kennslumyndbönd um styrktarþjálfun og gefið út tvær bækur: Functional Training for Sports (2003) og Advances in Functional Training (2010).

Fyrir frekari upplýsingar um Mike bendum við á leitarvélarnar Google og Youtube en einnig á síðurnar http://www.bodybyboyle.com/, http://www.strenghtcoach.com/ og http://mboyle1959.wordpress.com/, Allt síður á vegum Mike Boyle.

 


Kostir starfrænnar þjálfunar

09.00-10.30 ,,Lið fyrir Lið" aðferðin

Lærðu hvernig starfræn þjálfun heldur áfram á þróast á vísindalega hátt. Lærðu um ,,lið fyrir lið" aðferðina í þjálfun eins og hún hefur verið þróuð af Michael Boyle og Gray Cook og hvernig hún hefur áhrif á undirbúning fyrir æfingar.

 

10.30-12.00 ,,Lið fyrir lið" í upphitun - Verklegt

13.00-14.30 ,,Kostir starfrænnar þjálfunar í styrktarþjálfun

Lærðu að nota ,,Lið fyrir Lið" aðferðina í styrktarþjálfun og hvernig framþróun á æfingum á að vera.

 

14.30-16.00 ,,Lið fyrir Lið" í styrktarþjálfun

Lærðu mikilvæga framþróun á kvið-, pressu-, drag- og fótaæfingum.

 

 

Framsetning efnis

Póstlisti


moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf