Heilsuskóli Keilis - ÍAK einkaþjálfun og íþróttaþjálfun

Dave Jack ,,Ég hef sótt námskeið hjá fjölda mörgum þjálfurum en Dave Jack er einn sá besti sem ég hef komist í kynni við"  Helgi Jónas Guðfinnsson,

Dagur 3, 25. september

Dave Jack

,,Ég hef sótt námskeið hjá fjölda mörgum þjálfurum en Dave Jack er einn sá besti sem ég hef komist í kynni við"  Helgi Jónas Guðfinnsson, íþrótta- og styrktarþjálfari

Tímaritið Men‘s Health valdi Dave Jack einn besta þjálfara Bandaríkjanna árið 2008 og undanfarin ár hefur hann orðið gríðarlega vinsæll innan Bandaríkjanna sem leiðbeinandi á námskeiðum fyrir fagfólk í þjálfun, bæði fyrir þjálfara almennings og íþróttamanna.

Dave hefur mikla þjálfunarreynslu og starfaði m.a. sem styrktar og ástandsþjálfari ruðningsliðsins Tampa Bay Buccaneers. Hann hefur þróað styrktaræfingakerfi fyrir atvinnumenn í íþróttum, samtök, börn og fullorðna. Æfingar Dave eru þekktar fyrir að vera öðruvísi; hraðaþróunaræfingar, liðleikaæfingar og aflraunir í bland við jóga, dans, íþróttir og frjálsan leik.

Dave veitir reglulega ráðgjöf í Rodale Inc, Men’s Health (MH) og Women’s Health (WH). Hann aðstoðaði Paul Pierce, fyrirliða Boston Celtics með herferðina „Truth on Health“ og var í hópi sérfræðinga sem komu að verkefninu „FitSchools“, hvatningakerfi fyrir bætta íþróttakennslu innan skóla í Bandaríkjunum.

Dave lokar Þjálfarabúðum Keilis laugardaginn 25. september. Hann tvískiptir sínum degi. Fyrir hádegi mun hann kenna þátttakendum nokkur lykilatriði sem skipta máli þegar hjálpa á skjólstæðingi í að verða bestur frá því að vera bara góður, hvort sem um er að ræða topp íþróttamann eða einstakling sem vill ná hámarksárangri með sitt líkamlega hreysti til að líta vel út og líða vel.

Eftir hádegi mun Dave síðan taka fyrir mjög spennandi þjálfunaraðferðir sem taka mið af vöðvamassa/efnaskipta þjálfun eða Metabolic/Density Training eins og það kallast á ensku. Þátttakendur fá að taka vel á því!

 


F.h. Þjálfun: Frá góðum í bestan

Fyrirlestur - Nútímaþjálfarar eru kaffærðir af upplýsingum og fræðum um þjálfun og hreysti frá bókum, þeim sem náð hafa árangri með sinn líkama eða í sinni íþróttagrein og frá þjálfurum alls staðar af. Margir ungir og upprennandi þjálfarar einbeita sér aðeins að þjálfuninni sem slíkri en gleyma oft að hugsa lykilatriðin á bakvið stóru myndina.

Hér fer Dave Jack yfir lykilhlutverk þjálfarans og hvernig hann getur farið frá góðum þjálfara í þann besta.

Verklegt - Í verklega hlutanum fer Dave, á hagnýtan hátt, yfir nokkur lykilatriði úr fyrirlestrinum á undan með það að markmiði að gefa þjálfurum fleiri verkfæri í kassann. Í lokin eiga þátttakendur að vera betur í stakk búnir til að meta og forgangsraða eigin sýn, markmiðum, óska útkomu og mælikvarða á árangur.

E.h. Hámarks árangur á lágmarks tíma

Metabolic/Density training

Fyrirlestur - Efnaskiptaþjálfun (Metabolic training) er ekkert ný undir sólinni, né eina eða besta þjálfunaraðferðin, en samt sem áður er þetta mjög áhrifarík þjálfunaraðferð sem hentar vel til að ná fram hámarks árangri á lágmarks tíma. Fjallað verður um almenn hugtök um efnaskiptaþjálfun, vinsælar aðferðir (t.d. stigmagnandi vöðvamassaþjálfun eða EDT sem er hannað af Charles Staley einum vinsælasta styrktarþjálfara frá Bandaríkjunum) og þætti sem hafa þarf í huga við æfingakerfiasmíði.

 

Verklegt - Þátttakendum er boðið uppá að kynnast mismunandi efnaskipta- og vöðvamassaþjálfunaraðferðum. Vertu tilbúinn til að taka á því og upplifa alvöru þjálfunaraðferðir!

Framsetning efnis

Póstlisti


moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf