Flýtilyklar
Að námi loknu
Nám í ÍAK einkaþjálfun býður upp á ýmsa möguleika og nýtist á marga vegu.
Einkaþjálfun
ÍAK einkaþjálfarar útskrifast úr náminu tilbúnir til þess að taka að sér fólk í styrktar- og ástandsþjálfun hvort sem það er á heilsuræktarstöðvum, hjá íþróttafélögum, í heimaþjálfun eða hvar sem er. Könnun sem gerð var á útskrifuðum ÍAK einkaþjálfurum í lok árs 2009 sýnir að ÍAK einkaþjálfarar eru eftirsóttir hjá heilsuræktarstöðvum og hjá þeim sem kaupa þjónustu einkaþjálfara. Könnunin leiddi í ljós að af þeim sem svöruðu sáu 74% þeirra fram á að þjálfa meira árið 2010 heldur en árið 2009. 26% sáu fram á að þjálfa jafnmikið en enginn sá fram á að þjálfa minna.
Íþróttaþjálfun
"Til þess að vera góður í íþróttum er ekki nóg að hafa hæfileika í sinni íþróttagrein heldur þarf líka að vera sterkur, fljótur, liðugur og með gott jafnvægi. Þessa þætti þarf að þjálfa sérstaklega og markvisst." (Guðjón Valur Sigurðsson)
Nám í ÍAK einkaþjálfun nýtist vel íþróttaþjálfurum í styrktar- og ástandsþjálfun íþróttamanna. Mikil áhersla er lögð á meiðslafræði í náminu og nemendur læra æfingar og frammistöðupróf sem henta vel þjálfun á íþróttamönnum. Þeir sem vilja sérhæfa sig í styrktar- og ástandsþjálfun íþróttamanna hafa kost á að sækja nám í ÍAK íþróttaþjálfun sem er framhald af ÍAK einkaþjálfun.
Minn eigin einkaþjálfari
Stór hópur ÍAK einkaþjálfara sækir námið til þess að sækja sér þekkingu á þjálfun og næringu til að geta verið sinn eigin einkaþjálfari án þess að vilja starfa við einkaþjálfun. Þetta á við um hinn almenna áhugamann um góða heilsu og hreysti og einnig um afreksíþróttamenn sem vilja hámarka árangur sinn í íþróttinni og lágmarka meiðsli. Meðal nemenda í ÍAK einkaþjálfun eru 9 landsliðsmenn í íslenska handboltaliðinu, þeir Guðjón Valur Sigurðsson, Björgvin Páll Gústafsson, Logi Geirsson, Vignir Svavarsson, Ingimundur Ingimundarson, Hreiðar Levy Guðmundsson, Einar Hólmgeirsson og Ragnar Óskarsson. Auk þessara afreksíþróttamanna hefur afreksfólk í körfubolta, frjálsum íþróttum, aflraunaíþróttum, golfi, fitness og fl. stundað nám í ÍAK einkaþjálfun
Frekara nám
Nám í ÍAK einkaþjálfun er góður kostur fyrir þá sem vilja sérhæfa sig á ákveðnu sviði innan heilsuræktar en hafa ekki gert upp hug sinn hvert sviðið skuli vera. Nám í ÍAK einkaþjálfun gefur góða innsýn í ýmiss sérfræðistörf á sviði heilsu og þjálfunar, t.a.m. íþróttafræði, sjúkraþjálfun, lífeðlisfræði, sálfræði og næringarfræði.
Keilir býður uppá einstaka námsbraut, ÍAK íþróttaþjálfari, fyrir ÍAK einkaþjálfara sem vilja sérhæfa sig í styrktar- og ástandsþjálfun íþróttamanna.
|
|
||
![]()
|
"ÍAK einkaþjálfaranámið er án efa besta einkaþjálfaranámið sem er í boði á íslandi í dag. Mjög góðir kennarar og námið vel skipulagt svo það nýtist nemendum beint í starfi. Ekki nokkur spurning að við munum leita eftir því að ráða ÍAK einkaþjálfara til okkar." Ingi Páll og Þröstur Jón Sigurðssynir, eigendur Sporthússins |
|








