Heilsu- og uppeldisskóli Keilis - ÍAK einkaþjálfun og íþróttaþjálfun - Keilir

Verð Verð á 3ja daga þjálfarabúðum: kr. 64.900. Innifalið er morgun- og hádegissnarl alla dagana. Verð á stökum degi kr. 24.900. Innifalið er morgun- og

Verð og skráning

Verð

Verð á 3ja daga þjálfarabúðum: kr. 64.900. Innifalið er morgun- og hádegissnarl alla dagana.

Verð á stökum degi kr. 24.900. Innifalið er morgun- og hádegissnarl. 

Til samanburðar má geta þess að dagsnámskeið með Mike Boyle kosta 190.000 krónur í USA.

Þátttakendur fá viðurkenningarskjal til staðfestingar um að hafa lokið þjálfarabúðunum.

ÍAK einkaþjálfarar og ÍAK einkaþjálfaranemar fá 20% afslátt.

Ef fjórir þjálfarar koma frá sama félagi/fyrirtæki er aðeins greitt fyrir þrjá.

Þátttakendur eru hvattir til að kanna endurmenntunarstyrki hjá sínum stéttarfélögum og/eða íþróttafélögum.

Við vekjum athygli á því að samkvæmt 7. mgr. 3. gr. reglugerðar nr. 483/1994, um frádrátt frá tekjum af atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi, telst til rekstrarkostnaðar kostnaður við námskeið sem tengjast starfinu beint. Tekur það m.a. til námskeiða sem ætluð eru til viðhalds menntun í starfsgrein viðkomandi aðila og til þess að fylgjast með nýjungum í starfsgreininni.


Skráning

Skráningarfrestur er til 10. september. Skráðu þig á námskeiðið á namskeid@keilir.net

Við skráningu þarf að koma fram:

  • Nafn þátttakanda
  • Kennitala þátttakanda
  • Þjálfunarsvið (einkaþjálfun, íþróttaþjálfun, sjúkraþjálfun eða annað)
  • Nafn greiðanda
  • Kennitala greiðanda
  • Heimilisfang greiðanda

Greiðsluskilmálar

Þátttakandi sem skráir sig á námskeiðið samþykkir með skráningunni að greiða uppsett námskeiðsgjald.  

Hætti þátttakandi við að taka þátt í námskeiðinu skal hann tilkynna það með tölvupósti á namskeid@keilir.net minnst viku áður en námskeiðið hefst. Berist tilkynningin innan viku áður en námskeiðið hefst fellur til skráningar- og umsýslugjald, kr. 5.000. 

Ef þátttakandi skráir sig ekki úr námskeiðinu eða hættir eftir að það er hafið áskilur Keilir sér rétt til þess að innheimta allt að 100% af námskeiðsgjaldi.

Framsetning efnis

Póstlisti


moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf