Flýtilyklar
Námsgjöld í ÍAK íþróttaþjálfaranámskeiðið
Námskeiðið kostar 250.000 krónur en handhafar ÍAK einkaþjálfaraskírteini greiða 220.000 krónur.
Innifalið í námskeiðsgjöldum eru Þjálfarabúðir 22.-24. september sem kosta 69.900.
Rukkað verður fyrir staðfestingagjaldi, kr. 45.000 þegar umsókn hefur verið samþykkt sem gengur uppí námsgjöldin. Eftirstöðuna þarf að hafa fullgreitt áður en námskeiðið hefst. Boðið er uppá kortalán.
Umsækjendur eru hvattir til að kanna námskeiðsstyrki hjá sínum stéttarfélögum og íþróttafélögum.
Við vekjum athygli á því að samkvæmt 7. mgr. 3. gr. reglugerðar nr. 483/1994, um frádrátt frá tekjum af atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi, telst til rekstrarkostnaðar kostnaður við námskeið sem tengjast starfinu beint. Tekur það m.a. til námskeiða sem ætluð eru til viðhalds menntun í starfsgrein viðkomandi aðila og til þess að fylgjast með nýjungum í starfsgreininni.






