Heilsuskóli Keilis - ÍAK einkaþjálfun og íþróttaþjálfun

Námskeiðið hefst í september 2011 og kennslu lýkur í febrúar 2012. Kennt er í gegnum fjarkennslu a.m.k. einu sinni í viku með átta heilum staðbundnum

Skipulag námskeiðs

Námskeiðið hefst í september 2011 og kennslu lýkur í febrúar 2012.

Kennt er í gegnum fjarkennslu a.m.k. einu sinni í viku með átta heilum staðbundnum kennsludögum. Fjarkennslan er ýmist í formi innlesinna fyrirlestra eða lifandi fjarkennslu þar sem nemendur taka virkan þátt í umræðum.

Staðkennsla verður átta daga á námstímabilinu, ávalt föstudagur og laugardagur klukkan 09.00-16.00. Á fyrri degi staðkennslunnar fara nemendur í gegnum þær æfingar og greiningar sem farið hefur verið yfir fræðilega í fjarkennslunni fram að staðkennslulotunni. Á seinni deginum spreyta nemendur sig á að kenna æfingarnar eða gera greiningarnar á íþróttafólki eftir því sem við á. Kennarar leitast eftir því að gera aðstæður sem raunverulegastar. Þannig fá nemendur heilmikla hagnýta reynslu.


Námsmat

Í lok námskeiðsins verðu prófað í þálfun bæði verklega og munnlega. Nemendur þurfa að ná að lágmarki 7,0 í einkunn. Þá skrifa nemendur einnig lokaverkefni að eigin vali með samþykki frá leiðbeinendum eftir að kennslu lýkur.

Innifalið í námskeiðinu eru 3ja daga þjálfarabúðir 22.-24. september  Michael Boyle, Charles Staley og dr. Chris Mohr & dr. Kara Mohr.

Námskeiðið hentar vel með vinnu eða öðru námi.

Framsetning efnis

Póstlisti


moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf