Flýtilyklar
ÍAK íþróttaþjálfun
ÍAK íþróttaþjálfun er einstakt námskeið fyrir fagfólk í þjálfun. Námskeiðið er mjög hagnýtt og hnitmiðað og ætlað metnaðarfullum þjálfurum sem vilja sérhæfa sig í að styrktar- og ástandsþjálfa íþróttamenn á afreksstigi.
Íþróttamenn eru undir miklu æfinga- og leikjaálagi og miklar kröfur eru gerðar til þeirra. Markviss og einstaklingsmiðuð styrktar- og ástandsþjálfun er mjög mikilvægur þáttur í öllum íþróttagreinum, bæði til að ná auknum árangri og draga úr hættu á meiðslum. Íþróttamaður sem er vel og rétt þjálfaður er mun líklegri til að komast hjá meiðslum og nýtist liði sínu því mun betur.
Námskeiðið er skipulagt í samstarfi við íþróttafræðiskor Háskóla Íslands og sett upp sem þverfaglegt endurmenntunarnámskeið fyrir fagfólk með grunn í íþróttafræði, sjúkraþjálfun eða ÍAK einkaþjálfun og vill sérhæfa sig í styrktar- og ástandsþjálfun íþróttamanna.
Nemendur útskrifast með viðurkenningu sem ÍAK íþróttaþjálfarar en námskeiðið gefur ekki einingar.
Áhugaverð grein eftir Einar Einarsson um ÍAK íþróttaþjálfun
Markmiðið með námskeiðinu er að
- skapa framúrskarandi styrktar- og ástandsþjálfara sem hafa hæfni til að búa til einstaklingsmiðaðar æfingaáætlanir fyrir íþróttamenn og lið með það að markmiði að hámarka getu þeirra og lágmarka hættu á meiðslum og vöðvaójafnvægi.
- nemendur skilji samþættingu góðra grunngilda í þjálfun og reynslu úr klíniskri vinnu og temji sér nýjustu aðferðir við hreyfimat og þjálfun byggðar á vísindalegum niðurstöðum.
Um þjálfunarhugmyndafræðina
Í fyrsta sinn á Íslandi er nú kennd einstaklingsmiðuð styrktar- og ástandsþjálfun íþróttamanna. Byggt verður á sömu þjálfunarhugmyndafræði og í ÍAK einkaþjálfaranáminu, þ.e. þjálfunarfræðin miðast ekki við “eitt æfingakerfi fyrir alla” heldur er nemendum kennt að greina stoðkerfi einstaklinga út frá líkamsstöðu og hreyfingu. Styrktar- og teygjuþjálfun í kjölfarið byggir á þessum greiningum til að ná hámarksárangri og lágmarka meiðsl.
Þessi þjálfunarhugmyndafræði er ný á Íslandi en alls ráðandi í fremstu íþróttagreinum í Bandaríkjunum. Árið 2006 voru 91% styrktarþjálfara í NBA handhafar íþróttaþjálfaraskírteina sem byggja á sömu hugmyndafræði. Þar á meðal styrktarþjálfarar The Phoenix Suns en meðferðum vegna meiðsla leikmanna liðsins fækkaði úr 2.500 í 950 á árunum 2003 og 2004 með tilkomu breyttrar styrktar- og ástandsþjálfunar.
Algengt er að íþróttamaður lendi á einhverjum tímapunkti á vegg, þ.e. hann hættir að bæta sig, hvort sem um er að ræða í hraða eða styrk. Ástæðuna má oft rekja til þess að íþróttamaðurinn er kominn í vöðvaójafnvægi sem er eðlilegt að gerist þegar ein íþróttagrein er stunduð af miklu kappi. Þannig eru fótboltamenn gjarnan of sterkir í framanlærisvöðvum og kviðvöðvum en á móti veikir í aftan í læri og í baki. Aðrir íþróttamenn í spaðagreinum eða golfarar eru gjarnan of liðugir í mjóbaksliðum sem leiðir til stirðleika annars staðar í hreyfikeðjunni eins og í efra baki og vanhæfni í stýringu og stjórn hryggjar. Ójafnvægi í hreyfikeðjunni sem þetta hamlar ekki einungis framför heldur eykur það á meiðslahættu.
Mikilvægt er að íþróttamenn fái einstaklingsmiðaða þjálfun á styrk og liðleika hvort sem um er að ræða íþróttamann í einstaklings- eða hópíþrótt.
Helstu áhersluatriði í námskeiðinu
Meginþunginn í námskeiðinu verður þjálffræði. Farið verður ítarlega í gerð æfingakerfa fyrir mismunandi æfingatímabil hvort sem er fyrir einstaklinga eða lið. Kennd verða hagnýt frammistöðupróf, mismunandi aðferðir lyftinga, mismunandi upphitunaraðferðir fyrir æfingar og leiki eftir eðli íþróttagreinar, kraft-, hraða- og liðleikaþjálfun. Einnig verður lögð áhersla á hugarþjálfun og næringu íþróttamanna.
Í lok námskeiðsins munu þátttakendur hafa öðlast færni til að skapa og þjálfa íþróttamenn í fremstu röð. Farið verður ítarlega í:
- Styrktar- og snerpuþjálfun á afreksstigi
- Mælingar á afreksstigi
- Þjálfun íþróttamanna í keppnislíkum aðstæðum eftir að meiðsla og endurhæfingarferli lýkur
- Mismunandi upphitunaraðferðir eftir íþróttagreinum, fyrir æfingar og leiki
- Hraðaþjálfun afreksmanna á heimsmælikvarða
- Plyometrics æfingar
- Kraftþjálfun
- Ólympískar lyftingar
- Gerð æfingakerfa fyrir mismunandi æfingatímabil eftir eðli íþróttagreina fyrir einstaklinga og lið
Auk kennslu í þjálfun verður farið í íþróttasálfræði.
Fyrir hverja er námskeiðið?
ÍAK íþróttaþjálfaranámskeiðið er sniðið til að mæta þörfum fólks með haldgóða þekkingu á íþrótta- og þjálfarafræðum og vilja bæta við þekkingu sína til að geta unnið einstaklingsmiðað með styrktar- og ástandsþjálfun íþróttamanna. Námskeiðið nýtist einnig íþróttamönnum sem vilja ná hámarksárangri í sinni íþrótt.
Lágmarksinntökuskilyrði í námskeiðið er fullnaðarpróf í ÍAK einkaþjálfun, 1 ár í íþróttafræði eða sjúkraþjálfun eða a.m.k. 200 stunda þjálfaranám auk 10 ára starfsreynslu.






