Heilsuskóli Keilis - ÍAK einkaþjálfun og íþróttaþjálfun

Ágæti ÍAK einkaþjálfaranemi Til hamingju með að hafa hlotið inngöngu í ÍAK einkaþjálfaranámið. Alls sóttu yfir 200 manns um og 92 einstaklingar voru

Upplýsingar fyrir nýnema

Ágæti ÍAK einkaþjálfaranemi

Til hamingju með að hafa hlotið inngöngu í ÍAK einkaþjálfaranámið. Alls sóttu yfir 200 manns um og 92 einstaklingar voru teknir inn, 26 á Akureyri og 66 í Reykjanesbæ. Starfsfólk og kennarar eru farin að hlakka mikið til komandi vetrar og vonum að það sama eigi við nýnema. Hér má finna upplýsingar um nokkur mikilvæg atriði.


Fyrsti dagurinn

Föstudaginn 19. ágúst er skólasetning hjá þeim sem sækja staðlotur hjá Keili á Ásbrú klukkan 12-18. Markmið þessa fyrsta dags er að kynna skólaumhverfið, sýna kennsluaðstöðu, kenna á kennslukerfin og hrista hópinn saman. Kynntur verður fyrsti áfangi námsins, vöðva- og hreyfifræði.

Sunnudaginn 21. ágúst er skólasetning hjá Akureyrarhópi og verður hún í Heilsuræktinni á Akureyri klukkan 12-18. Dagskráin er sú sama og á föstudeginum hjá Ásbrúarhópum.

Nemendur skulu hafa með sér fartölvu fyrsta daginn og vera í þægilegum klæðnaði til að geta tekið virkan þátt í hópefli.


Staðlotur

Nemendum sem sækja staðlotur á Ásbrú er skipt í tvo hópa, A og B. Nemendur geta valið um í hvorum hópnum þeir vilja vera og skulu tilkynna val sitt á steinthora@keilir.net. Það er mjög brýnt að nemendur átti sig á því að það er 100% mætingaskylda á vinnuhelgar því verklega kennslu er ekki hægt að bæta upp með lestri eða verkefnavinnu.

Staðlotur hjá A hópi á Ásbrú og hjá Akureyrarhópi vorönn 2012

6.-8. janúar
3.-5. febrúar
9.-11. mars
20.-22. apríl
4.-6. maí (próf)

Staðlotur hjá B hópi á Ásbrú

13.-15. janúar
10.-12. febrúar
16.-18. mars
27.-29. apríl
11.-13. maí (próf)

Skólabækur

Bókasölu annast Bóksala Stúdenta

Lífeðlisfræði 1 og 2: Essentials of Exercise Physiology, 4. útgáfa, 2010. Ritstjórar: William D. McArdle, Frank I. Katch og Victor L. Katch.

Næringarfræði 1 og 2: Lífsþróttur-næringarfræði fróðleiksfúsra, eftir Ólaf Gunnar Sæmundsson, útg. Stapaprent, 2007.

Þjálffræði og Vöðva- og hreyfifræði: ÍAK kennslubók afhent fyrsta skóladaginn.


Sporthúsið/World Class/Bjarg

Allir ÍAK einkaþjálfaranemar fá frítt kort í líkamsrækt á meðan á námi stendur í Sporthúsið, World Class eða á Bjargi eftir því hvort þeir sækja staðlotur í Reykjanesbæ eða á Akureyri. Kortið tekur gildi 22. ágúst. Þá fá nemendur einnig aðgang að þreksalnum í íþróttahúsinu á Ásbrú óski þeir eftir því.


Nemendaskírteini-samgöngur

Nemendur geta sótt um að fá nemendaskírteini og skulu umsóknir um skírteini berast á netfangið sirry@keilir.net.

Nemendaskírteinin gilda m.a í rútur SBK innan Reykjanesbæjar og milli Reykjavíkur og Keilis.  Áætlunarferðir SBK má sjá á heimasíðu þeirra http://www.sbk.is/ en Keilisferðir eru undir Reykjanes-Express. Einnig veitir framvísun skírteinisins afslátt af Lang best, veitingastað hér á Ásbrú.


Tölvur

Nemendur þurfa að vera með Office uppsettan á tölvum sínum, vert er að benda á að upplýsingatækni er kennd á office umhverfið í PC tölvum og því eru þær tölvur hentugri til námsins þó svo bæði gangi að nota pc og Apple tölvu. Þeir sem nota Apple tölvur þurfa að vera með Mac office uppsett á vélunum hjá sér og gera ráð fyrir því að sum verkefni séu tímafrekari í vinnslu.

Skólinn býður nemendum sem eiga við námsörðuleika að stríða upp á að nota vital talgervil. Nemendum er bent á að til að nota hugbúnaðinn þarf PC tölvu, hugbúnaðurinn virkar ekki í Apple tölvum.

Nánari upplýsingar um tölvuþjónustuna má finna hér.

Framsetning efnis

Póstlisti


moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf