Heilsu- og uppeldisskóli Keilis - ÍAK einkaþjálfun og íþróttaþjálfun - Keilir

Námið er kennt á tveimur önnum, haustönn og vorönn Fjarnám með staðbundnum vinnuhelgum Bóklegur hluti námsins er kenndur í fjarnámi en vinnuhelgar

Skipulag náms

Námið er kennt á tveimur önnum, haustönn og vorönn

Fjarnám með staðbundnum vinnuhelgum

Bóklegur hluti námsins er kenndur í fjarnámi en vinnuhelgar eru staðbundnarí Íþróttaakademíu Keilis á Ásbrú og á Akureyri. Þannig gefst sem flestum kostur á að stunda nám í ÍAK einkaþjálfun óháð búsetu.

100% skyldumæting er á vinnuhelgar. Fyrstu vinnuhelgi skólaársins taka allir nemendur í Íþróttaakademíu Keilis, líka þeir sem taka annars staðlotur á Akureyri.


Vinnuálag

Tveir fyrirlestrar (4*40mín) eru í viku í fjarkennslu og nemendur skulu leysa stutt verkefni úr hverjum fyrirlestri. Nemendur hafa 3 sólarhringa til að heyra á fyrirlesturinn og vinna verkefnið og eru því ekki háðir ákveðnum stað og tíma heldur geta þeir stundað námið á þeim tíma sem þeim hentar best. Í gegnum fjarfundakerfið geta nemendur sent kennara og samnemendum spurningar um efni fyrirlestursins.

Staðbundar vinnulotur eru eina helgi í mánuði frá föstudegi til sunnudags. Kennsla er frá kl. 12-19 á föstudögum, kl. 9-16 á laugardögum og kl. 9-16 á sunnudögum. Á staðbundnum lotum er fyrst og fremst lagt áherslu á verklega kennslu í þjálfun sem og hagnýt verkefni í bóklegum áföngum.

Á seinni önn eiga nemendur að greina einstakling, skrifa æfingakerfi byggt á útkomu greiningarinnar og markmiðum einstaklingsins, þjálfa hann í 8 vikur og skila kennara skýrslu.

Reynt er að dreifa vinnuálaginu með því að hafa lokapróf áfanga um leið og áföngum er lokið.

Námið er krefjandi og gerðar eru miklar kröfur til nemenda um ástundun og kunnáttu.


Bókalisti

Bækur fást í Bóksölu stúdenta

LEF 1003 og 2003 Essentials of Exercise Physiology, 3ja útgáfa, 2006. Ritstjórar: William D. McArdle, Frank I. Katch og Victor L. Katch.
NÆR 1003 og 2003 Lífsþróttur-næringarfræði fróðleiksfúsra. Höfundur: Ólaf Gunnar Sæmundsson, útg. Stapaprent, 2007.
Þjálffræði og vöðva- og hreyfifræði ÍAK Kennslubók afhent í upphafi skólaárs
SÁl 1003 Foundation of sport and exercise phsycology, 4. útgáfa. Höfundar: Daniel Gould og Robert Weinberg.


Stúdentaíbúðir

Nemendur sem fá inngöngu í ÍAK einkaþjálfaranámið eiga kost á að leigja stúdentaíbúðir hjá Keili á meðan á námi stendur. Nánari upplýsingar má finna á: www.keilir.net. Þar að auki hafa nemendur aðgang að hótelíbúðum hjá Keili á vinnuhelgum. Verð fyrir tvær nætur er 6.000 krónur og 4.000 krónur fyrir eina nótt. 

Framsetning efnis

Póstlisti


moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf