Heilsuskóli Keilis - ÍAK einkaþjálfun og íþróttaþjálfun

Nám í ÍAK einkaþjálfun er góð fjárfesting fyrir þá sem vilja gera einkaþjálfun að starfi sínu eða fjárfesta til framtíðar í góðri heilsu og

Námsgjöld

Nám í ÍAK einkaþjálfun er góð fjárfesting fyrir þá sem vilja gera einkaþjálfun að starfi sínu eða fjárfesta til framtíðar í góðri heilsu og líðan.

Námsgjöldin eru lánshæf hjá LÍN skv. reglum sjóðsins. Við inngöngu í námið er gefinn út reikningur fyrir staðfestingargjaldi kr. 45.000. Áður en námið hefst er síðan sendur út reikningur fyrir fyrri önninni, kr. 300.000. Þá er sendur úr reikningur fyrir seinni önninni í lok fyrri annar, kr. 240.000. Samtals eru námsgjöld því kr. 585.000.

Vegna mikils tilkostnaðar við að bjóða uppá námið með staðlotum í Noregi bætist við kr. 70.000 í námsgjöld fyrir nemendur sem sækja þar staðlotur.


Innifalið í námsgjöldum

Innifalið í námsgjöldum er, auk kennsluaðstöðunnar og kennslunnar, frítt kort í líkamsrækt á meðan á námi stendur. Nemendur sem sækja staðlotur í Reykjanesbæ fá kort í Sporthúsinu og World Class en þeir sem sækja staðlotur á Akureyri fá kort í Bjargi. ÍAK kennslubók sem notast er við í þjálffræðiáföngum er einnig innifalin.


Reglur um námsgjöld 2011 - 2012

  1. Staðfestingargjald er innheimt strax að lokinni samþykkt í nám.
  2. Staðfestingargjald er óafturkræft, hætti nemandi við að hefja nám hjá Keili.
  3. Skóla- og efnisgjöld eru innheimt fyrir hverja önn sérstaklega eða heila námsleið, allt eftir eðli námsskipulags. Gjöldin skulu vera að fullu greidd áður en nám hefst á viðkomandi önn eða námsleið.
  4. Nemandi sem ekki hefur greitt gjöld sín þegar önn hefst fær ekki að hefja nám á viðkomandi önn eða námsleið og aðgangi hans að net- og kennslukerfum Keilis er lokað.
  5. Skóla- og efnisgjöld eru óendurkræf, hafi nemandi hafið námið. Vegna sérstakra persónulegra aðstæðna getur nemandi óskað eftir að taka hlé á námi þar til viðkomandi námslína hefst aftur og getur þá átt skóla- og efnisgjöld inni í allt að eitt og hálft ár.
  6. Gjöld skulu greidd með útsendum greiðsluseðli.

Framsetning efnis

Póstlisti


moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf